Enski boltinn

Emery bað Wat­kins um að út­skýra fjar­veru sína: „Það er spurning fyrir hann“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ollie Watkins gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Aston Villa.
Ollie Watkins gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Aston Villa. getty/Simon Stacpoole

Aðspurður um fjarveru Ollie Watkins í 4-0 tapi Aston Villa fyrir Brighton í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag sagði Unai Emery, knattspyrnustjóri Villa, að enski landsliðsframherjinn yrði að útskýra hana sjálfur.

Villa hefur selt lykilmennina Youri Tielemans, Morgan Rogers, Ezri Konsa og Lucas Digne í sumar. Watkins hefur sömuleiðis verið orðaður við brottför frá Villa en Al-Hilal í Sádi-Arabíu hefur gert tilboð í hann.

Watkins var ekki í leikmannahópi Villa sem steinlá fyrir Brighton, 4-0, í dag. Eftir leikinn var Emery spurður að því hvort hann hefði ákveðið að skilja Watkins eftir utan hóps.

„Það er spurning fyrir hann. Þú getur hringt í hann og reynt að fá svar,“ sagði Emery.

„Leikmennirnir hér vildu spila og við vorum með tvo framherja sem voru lítillega meiddir. Spurningin um Watkins er fyrir hann.“

Emilano Martínez var heldur ekki í leikmannahópi Villa í dag en félagaskipti argentínska markvarðarins til Juventus féllu upp fyrir á dögunum.

Villa sá aldrei til sólar í leiknum á American Express-leikvanginum í dag en eftir 31 mínútur var liðið lent 4-0 undir. Joao Gomes fékk svo rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks en Brighton bætti þó ekki fleiri mörkum við.

Hinn þrítugi Watkins kom til Villa frá Brentford fyrir sex árum. Hann hefur skorað 108 mörk í 278 leikjum fyrir félagið og vann Evrópudeildina með því í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×