Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. ágúst 2026 13:41 Villa-menn vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Steve Bardens - AMA/Getty Images Aston Villa galt afhroð á útivelli gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. 4-0 tap varð niðurstaðan og Villa spilaði seinni hálfleikinn með aðeins tíu leikmenn. Áður en leikurinn hófst bárust Aston Villa þau slæmu tíðindi að Ollie Watkins yrði ekki með liðinu í dag, hann er líklega á förum en Unai Emery vildi ekki tjá sig um það. Leikurinn sjálfur hófst síðan með algjöru áfalli þegar Victor Lindelof skoraði sjálfsmark, eftir mikinn klaufaskap og misheppnaða sendingu í öftustu línu Aston Villa. Maxim De Cuyper tvöfaldaði forystu Brighton á 18. mínútu leiksins. Jack Hinshelwood skoraði þriðja markið á 30. mínútu, vann svo boltann af varnarmönnum Aston Villa og skoraði fjórða markið á 31. mínútu. Joao Gomes, sem gaf boltann frá sér í fjórða markinu, var svo rekinn af velli fyrir að sparka í andstæðing á 40. mínútu. Beint rautt spjald í frumraun sinni í ensku úrvalsdeildinni. Fleiri mörk voru ekki skoruð í seinni hálfleik en algjört hrun Aston Villa var staðreynd. Brighton fer hins vegar fagnandi úr fyrstu umferð deildarinnar. Enski boltinn Aston Villa FC Brighton & Hove Albion
Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndir sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndir sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Íslenski boltinn