Al­gjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Villa-menn vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. 
Villa-menn vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið.  Steve Bardens - AMA/Getty Images

Aston Villa galt afhroð á útivelli gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. 4-0 tap varð niðurstaðan og Villa spilaði seinni hálfleikinn með aðeins tíu leikmenn.

Áður en leikurinn hófst bárust Aston Villa þau slæmu tíðindi að Ollie Watkins yrði ekki með liðinu í dag, hann er líklega á förum en Unai Emery vildi ekki tjá sig um það.

Leikurinn sjálfur hófst síðan með algjöru áfalli þegar Victor Lindelof skoraði sjálfsmark, eftir mikinn klaufaskap og misheppnaða sendingu í öftustu línu Aston Villa.

Maxim De Cuyper tvöfaldaði forystu Brighton á 18. mínútu leiksins. Jack Hinshelwood skoraði þriðja markið á 30. mínútu, vann svo boltann af varnarmönnum Aston Villa og skoraði fjórða markið á 31. mínútu.

Joao Gomes, sem gaf boltann frá sér í fjórða markinu, var svo rekinn af velli fyrir að sparka í andstæðing á 40. mínútu. Beint rautt spjald í frumraun sinni í ensku úrvalsdeildinni.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í seinni hálfleik en algjört hrun Aston Villa var staðreynd. Brighton fer hins vegar fagnandi úr fyrstu umferð deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira