Arsenal byrjar titilvörnina sann­færandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
 Kai Havertz skoraði fyrsta mark leiksins og fyrsta mark tímabilsins.
Kai Havertz skoraði fyrsta mark leiksins og fyrsta mark tímabilsins. Vísir/getty/Julian Finney

Arsenal hóf titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni með sannfærandi hætti í kvöld þegar liðið vann nýliða Coventry City 3-0 á Emirates Stadium.

Kai Havertz kom Arsenal yfir á 15. mínútu og Bukayo Saka tvöfaldaði forystuna á 23. mínútu. Martin Ødegaard innsiglaði síðan sigurinn snemma í síðari hálfleik með þriðja marki Arsenal, á 49. mínútu.

Coventry, sem er komið aftur í efstu deild Englands eftir 25 ára fjarveru, átti erfitt uppdráttar gegn ríkjandi Englandsmeisturum. Gestirnir voru þó sprækir í upphafi en Arsenal tók fljótlega öll völd á vellinum.

Arsenal hélt hreinu og hafði mikla yfirburði þegar leið á leikinn. Coventry átti sitt fyrsta alvöru færi inni í vítateig Arsenal ekki fyrr en um klukkustund var liðin af leiknum.

Sigurinn er því kærkomin byrjun fyrir Mikel Arteta og lærisveina hans sem ætla sér að verja Englandsmeistaratitilinn. Arsenal hafði ekki byrjað titilvörn sína með sigri síðan liðið vann Crystal Palace 2-0 árið 2004.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira