Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. maí 2026 20:01 Guðmundur Árni, Halla Tómasdóttir og Ingvar Viktorson fyrrv. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Guðmundur Árni Stefánsson er oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Guðmundur Árni Stefánsson heiti ég og er er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og oddviti Samfylkingarinnar í bænum. Hef raunar búið Í Firðinum mestalla mína ævi, þó að undanskildum 15 árum, þegar ég gegndi störfum sendiherra fyrir Ísland í ólíkum löndum á borð við Svíþjóð, Bandaríkin, Indland og Kanada. Það var lærdómsríkur tími, en ég saknaði barna og barnabarna og flutti því heim og hætti störfum í utanríkisþjónustunni. Þá ákvað ég að á árinu 2022 að bjóða fram krafta mína í bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði, en þar hafði ég verið virkur á árum áður; meðal annars bæjarstjóri í 7 ár fyrir margt löngu. Það voru skemmtilegir og uppbyggilegir tímar fyrir okkur jafnaðarmenn og alla Hafnfirðinga. Pólitíkin hefur talsvert litað mína ævi, því eftir bæjarstjóraárin settist ég á þing í 13 ár og var ráðherra var ráðherra í tæp tvö ár; fyrst fyrir Alþýðuflokkinn og síðan Samfylkinguna eftir að breiðfylking jafnaðarmanna var stofnuð árið 2000.. Það er gott og gefandi að starfa og þjónusta almenning í stjórnmálum - þú ert alltaf í nánum tengslum við fólk og skynjar því þarfir þess og langanir. Ég starfaði einnig við blaðamennsku á yngri árum í 10 ár. Svo var ég lögga á sumrin meðfram námi. Ég á stóra og samhenta fjölskyldu. Kona mín er Jóna Dóra Karlsdóttir og börnin okkar eru Fannar Karl og Brynjar Freyr (létust ungir árið 1985), Margrét Hildur, Heimir Snær, Fannar Freyr og Brynjar Ásgeir. Þau eru öll uppkomin og barnabarnabörnin eru 11 talsins á aldrinum 3ja til 26 ára. Allt fólkið mitt býr í Hafnarfirðinum sem aukabónust. Ég hef áhuga á lífinu og fólki almennt. Jafnaðarstefnan er ekki bara stjórnmálastefna heldur lífsstefna, sem snýst um þrjú megingildi í lífinu: Jafnrétti allra, frelsi fólks til að njóta lífsins og samstöðu samfélagsins með þeim sem hjálp þurfa. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Í einhverju nágrannabyggðarlagi við Hafnarfjörð - sum sé á stór Hafnarfjarðarsvæðinu. Álftanesið væri ágætt, en þá yrði að skipta út Garðabæjaríhaldinu um leið!“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Biblían og Bókin um veginn.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Aðkeypta þjónustu. Bæjarstarfsmenn eru vel hæfir og vita og kunna flest.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Frítt í strætó fyrir öll ungmenni í bænum yngri en 18 ára og afgangurinn væri í upphafsframlag til byggingar þjónustuíbúða fyrir aldraða.“ Hver væri titi ll ævisögu þinnar? „Áfram gakk!“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja fyrst og svo skilaboð, ef ekki er svarað í hvelli.“ GÁS með hluta fjölskyldunnar - Jóna Dóra Karlsdóttir (eiginkona), GÁS, Heimir Snær, Fannar Freyr, Margrét Hildur, Aþena Arna, neðri röð: Embla Ey, Nína Snjólaug, Breki Hrafn, Guðmundur Loki og Hörður Freyr Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Tónlistarsmekkur minn er eilítið umdeildur innan flokks sem utan!“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Ég væri glaður ef ég gæti uppgötvað og tileinkað mér galdra golfsveiflunnar.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Það er ekki hægt að taka ákarðanir sem skipta máli í pólitík, sem verða óumdeildar. Ef svo ólíklega vill að það gerist, þá er lýðræðið ekki að virka til fullnustu.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Ég spurði gervigreindina um aldursskiptingu kjósenda í Hafnarfirði og um kosningaþátttöku síðustu ár og áratugi.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég get unnið með öllum flokkum, svo fremi að þeir skilji og virði grunngildi okkar jafnaðarmanna, sem eru jöfnuður, samhjálp, mennska og frelsi.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Ef þú hefur ekki gert mistök á ævinni, þá hefur þú ekki lifað lífinu til fullnustu.“ Guðmundur Árni Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Bæjarandinn er einstakur í Hafnarfirði. Þar er að finna nánd og samkennd meðal íbúa, jafnvel þótt íbúafjöldinn sé orðinn 33 þúsund.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Ég fæ mér banana og kaffibolla í morgunmat.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Stjórnleysið og lausatök í Hafnarfirði þoli ég illa. Það þarf að taka ákvarðanir um lítil mál og stór - og fylgja þeim fast eftir.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Koma Hafnarfirði á þann stað, sem hann á skilið: Í fyrsta sæti sveitarfélaga á Íslandi!“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Skýið hans Bjögga Halldórs hreyfir ávallt við mér.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Að koma ekki verkefnum áfram og í heila höfn. Stór og lítil verkefni bíða okkar jafnaðarmanna í Hafnarfirði fáum við góða kosningum. Við látum verkin tala.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Ég er stundum nefndur eftir upphafsstöfum í nafninu mínu - GÁS. Ég læt mér það vel líka, enda notaði ég þá skammstöfun þegar ég var í blaðamennskunni í gamla daga.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Það er mottó okkar jafnaðarmanna og þar með mín, að það sem við segjum það gerum við. Ég hef enga þolinmæði fyrir innhaldslausu gjálfri og loforðum. Orð eiga að standa í pólitík eins og annars staðar í lífinu.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Hafnarfjörður Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira