Mistókst að lyfta sér upp fyrir Liverpool Aron Guðmundsson skrifar 10. maí 2026 15:01 John McGinn í baráttunni í dag Vísir/Getty Þremur leikjum er lokið í dag í ensku úrvalsdeildinni og öllum lauk þeim með jafnteflum. Falldraugurinn vofir enn yfir Nottingham Forest og Aston Villa mistókst að gera fjórða sætið að sínu.
Á Turf Moor tók fallið lið Burnley á móti Aston Villa sem er í harðri baráttu um fjórða sæti dieldarinnar við Liverpool. Liverpool tapaði stigum á heimavelli gegn Chelsea í gær og hefðu lærisveinar Unai Emery því geta lyft sér upp fyrir þá í fjórða sætið með sigri í dag en allt kom fyrir ekki. Aston Villa lenti strax í brekku á áttundu mínútu leiksins þegar að Jaidon Anthony kom Burnley yfir með fyrsta markinu. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks náði Ross Barkley hins vegar að jafna metin fyrir Aston Villa, 1-1. Gestirnir frá Birmingham voru svo fyrri til að skora í seinni hálfleik. Það gerði Ollie Watkins er hann kom Aston Villa í forystuna. Gestirnir voru hins vegar ekki lengi í draumalandi því aðeins tveimur mínútum eftir mark Watkins jafnaði Zian Flemming metin fyrir Burnley og þar við sat. Lokatölur 2-2 jafntefli. Aston Villa verður því áfram í 5.sæti deildarinnar en nú með jafnmörg stig og Liverpool í því fjórða. Burnley fallið og í 19.sæti sem stendur. Gripu ekki gullið tækifæri Á Selhurst Park í Lundúnum tóku heimamenn í Crystal Palace á móti Everton sem gat með sigri saxað allverulega á liðin fyrir ofan sig í Evrópubaráttunni. Everton leiddi með tveimur mörkum gegn einu á 77.mínútu eftir mörk frá Beto og James Tarkowski en þá náði Jean Philippe Mateta að jafna metin fyrir Crystal Palace og tryggja liðinu stig. Lokatölur 2-2 jafntefli. Everton í 10.sæti með 49 stig og fjórum stigum frá Brighton í 7.sæti. Crystal Palace er í 14.sæti með 44 stig. Dramatískt jöfnunarmark Þá tók Nottingham Forest á móti Newcastle United í leik sem að lauk með 1-1 jafntefli. Það stefndi allt í sigur Newcastle United eftir mark Harvey Barnes á 74.mínútu en þegar komið var fram á 88.mínútu skoraði Elliot Anderson mikilvægt jöfnunarmark fyrir Forest. Nottingham Forest er í 15.sæti með 43 stig og ekki búið að losa sig við falldrauginn. Newcastle er í 13.sæti með 46 stig.
Enski boltinn Burnley FC Aston Villa FC Crystal Palace FC Everton FC Nottingham Forest Newcastle United Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Sjá meira