Tónlist

Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upp­hitun fyrir Yasiin Bey

Lovísa Arnardóttir skrifar
REW. er skipað þeim Benna B-Ruff og Kjartani Trauner.
REW. er skipað þeim Benna B-Ruff og Kjartani Trauner. Aðsend

Joey Christ, Alexander Jarl, Yung Nigo, Drippin, Ruby Francis, Emilía Hugrún, Saint Pete, Daron Karl, Kzoba, 7Berg, Dóri DNA, Class B og Byrkir B koma öll fram í upphitun REW fyrir tónleika Yasiin Bey, áður Mos Def, í Gamla bíó á laugardaginn.

Í tilkynningu um upphitunina segir að REW. hafi vakið athygli fyrir tónlist sína sem og tenginguna við myndbandsverk. Liveproject stendur fyrir tónleikunum.

REW, sem skipað er þeim Benna B-Ruff og Kjartani Trauner, er þekkt fyrir áhrifamiklar sviðssyrpur (mixtapes), settar saman og prodúseraðar af Benedikt Frey Jónssyni (B-Ruff) og í samstarfi við Gísla Galdur, þar sem íslenskt tónlistarfólk flytur tónlist sína og gamalt og nýtt myndefni Kjartans er spilað í bakgrunni.

Emilía Hugrún í upphitunaratriði REW á Mobb Deep. Aðsend

REW. hitaði einnig upp fyrir Mobb Deep, DJ Shadow, Talib Kweli og Pharcyde og nú munu þeir leiða tónleikagesti inn í tónleika Yasiin Bey með syrpu sem veitir innsýn í breidd og kraft íslenskrar hip hop senu.

Fram koma: REW., Joey Christ, Alexander Jarl, Yung Nigo, Drippin, Ruby Francis, Emilía Hugrún, Saint Pete, Daron Karl, Kzoba, 7Berg, Dóri DNA, Class B og Byrkir B. 

Benedikt Freyr segir fyrri viðburði hafa vakið mikla athygli og ekki síst þegar Mobb Deep tróð upp í KR-heimilinu fyrr á árinu.

„Þar sá REW. einnig um upphitun við mikinn fögnuð gesta sem margir sögðu upphitunaratriðið hafa staðið jafnfætis aðalatriði kvöldsins. Þar fluttu Daron Karl, Emilía Hugrún, Byrkir B, Alexander Jarl, Class B, Afkvæmi Guðanna, Emmsjé Gauti, Saint Pete, Birnir og Subterranean sviðssyrpu REW. Við flutning syrpunnar ætlaði þakið að rifna af KR-heimilinu og færri komust að en vildu,“ segir Benedikt.

Dóri DNA kemur fram á tónleikunum.Vísir/Vilhelm

Hann segir ljóst að laugardagskvöldið verði kvöld sem geti „sameinað alþjóðlega arfleifð og nýja íslenska rödd á einu sviði.

„Þar sem upphitunin er ekki aukaatriði heldur hluti af heildarupplifuninni.“


Tengdar fréttir

Mobb Deep kemur fram í KR-höllinni í mars

Bandaríska hiphop-sveitin Mobb Deep kemur fram á Íslandi þann 24. mars næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í húsnæði KR við Frostaskjól. Mobb Deep var stofnuð á tíunda áratugnum í New York og var hljómsveitin þá skipuð þeim Prodigy og Havoc.

Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu

Enn er unnið að því að finna nýjar dagsetningar fyrir listamenn sem áttu að koma fram á tónlistarhátíðinni Lóu næstu helgi. Tilkynnt var í gær að hátíðinni hafi verið aflýst. Búið er að staðfesta að (Mos Def) eða Yasiin Bey komi fram á Íslandi þann 9. maí á næsta ári í staðinn.

Syndir á móti straumnum í old school hip­hopi

Tónlistarmaðurinn Talib Kweli kemur fram á tónleikum í Gamla bíó þann 13. febrúar. Tónlistarmaðurinn Saint Pete sér um upphitun ásamt Benna B-Ruff eða Benedikt Frey Jónssyni en hann og Kjartan Trauner frumsýna nýtt efni í upphitun ásamt óvæntum gestum . Benedikt stendur að innflutningi Talib Kweli í gegnum fyrirtæki sitt Liveproject.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.