Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. apríl 2026 08:32 Eddie Howe svekktur á hliðarlínunni í tapi Newcastle United fyrir Bournemouth. getty/Stu Forster Alan Shearer, markahæsti leikmaður í sögu Newcastle United, spáir því að Eddie Howe hætti sem knattspyrnustjóri liðsins í sumar. Leikmenn Newcastle hafi hreinlega fleygt honum undir rútuna með frammistöðu sinni að undanförnu.
Newcastle tapaði 1-2 fyrir Bournemouth á laugardaginn og er í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Vonbrigði Newcastle-manna eru mikil en á síðasta tímabili unnu þeir deildabikarinn og komust í Meistaradeild Evrópu. Howe þykir vera orðinn valtur í sessi og Shearer finnst ólíklegt að hann verði stjóri Newcastle þegar næsta tímabil gengur í garð. „Eins erfitt og þetta er fyrir Eddie veit ég ekki hvað gerist með hann. Ég horfði á viðtalið við hann eftir leikinn og horfði á hann á hliðarlínunni og hugsaði: Vill hann halda áfram? Fær hann tækifæri til þess?“ sagði Shearer í hlaðvarpinu The Rest is Football. „Ég sé Eddie Howe því miður ekki í starfi hjá Newcastle á næsta tímabili. Ég horfði á viðtalið og er ekki viss um að baráttuandinn sé til staðar.“ Shearer segir að sökin á slæmu gengi Newcastle liggi hjá leikmönnum liðsins. „Ég horfði á leikmennina og ef þetta er það sem þeir kalla að berjast fyrir stjórann voru þeir hræðilegir. Þeir fleygðu honum undir rútuna,“ sagði Shearer. Howe hefur stýrt Newcastle frá því í nóvember 2021. Hann hefur tvisvar sinnum komið liðinu í Meistaradeildina og í fyrra vann hann fyrsta stóra titil Newcastle í 56 ár.
Enski boltinn Newcastle United Tengdar fréttir Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Bournemouth vann 1-2 sigur gegn Newcastle á St. James Park. Leikmenn Bournemouth lögðu upp öll þrjú mörk leiksins. 18. apríl 2026 16:09 Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Fleiri fréttir „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Sjá meira
Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Bournemouth vann 1-2 sigur gegn Newcastle á St. James Park. Leikmenn Bournemouth lögðu upp öll þrjú mörk leiksins. 18. apríl 2026 16:09