Friðarviðræður runnu út í sandinn Freyja Þórisdóttir skrifar 12. apríl 2026 08:46 Í bandarísku sendinefndinni eru auk J.D. Vance varaforseta Steve Witkoff erindreki og fyrrum fasteignasali og golffélagi Bandaríkjaforseta og Jared Kushner tengdasonur Bandaríkjaforseta. AP JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur yfirgefið Islamabad, höfuðborg Pakistan, eftir að friðarviðræðum við Íran lauk án samkomulags. Hann sagðist hafa lagt fram „besta og endanlegasta tilboð“ sem hann væri fær um fyrir hönd Bandaríkjanna.
Þessu segir katarska fréttaveitan Al Jazeera frá í umfjöllun sinni en þar kemur einnig fram að utanríkisráðuneyti Írans hafi sagt að samkomulagi hafi verið náð um nokkur atriði og að það sé eðlilegt að endanlegt friðarsamkomulag hafi ekki náðst á einum degi. Vance fer fyrir samninganefnd Bandaríkjanna en á fundinn í Islamabad mættu Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettir embættismenn. Breski fjölmiðillinn BBC greindi frá því að JD Vance varaforseti Bandaríkjanna hafi sagt að samninganefnd Teheran hafi ekki samþykkt skilmála Bandaríkjamanna. Viðræður fóru að sögn utanríkisráðuneytisins í Íran fram í andrúmslofti sem einkenndist af „vantrausti, tortryggni og efa“. Ráðuneytið hefur síðustu daga hvatt Bandaríkin til að forðast „óhóflegar kröfur“ og hefur neitað fullyrðingum Bandaríkjanna um að tvö skip þeirra hafi farið um Hormússund. Fyrr í vikunni var greint frá því að fallist hefði verið á tillögu um tveggja vikna vopnahlé sem fór hins vegar úr skorðum innan við sólarhring síðar vegna loftárása Ísraels á Líbanon. Pakistanar og Íranar vildu meina að vopnahléð næði einnig til Líbanons en því voru Bandaríkjamenn og Ísraelar ósammála. Íran liggi ekkert á Íranska fréttastofan Tasnim hefur eftir heimildarmanni sínum að „boltinn sé hjá Bandaríkjunum“ og að „Íran liggi ekkert á“ að semja. Hann sakaði jafnframt Bandaríkin um að hafa misreiknað sig í samningaviðræðunum, rétt eins og þau hefðu gert í stríði, og varaði við því að ekkert myndi breytast á Hormússundi „fyrr en Bandaríkin myndu samþykkja skynsamlegan samning“. Engin dagsetning eða staðsetning hefur verið ákveðin fyrir hugsanlega næstu umferð viðræðna.
Íran Pakistan Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Tengdar fréttir Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979. 11. apríl 2026 15:33 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent „Þetta situr náttúrulega í manni“ Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira
Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979. 11. apríl 2026 15:33