Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Valur Páll Eiríksson skrifar 31. mars 2026 16:17 Alessandro Nesta hefur ekki tekist stórkostlega til á ferli hans sem aðalþjálfari en býðst nú aðstoðarþjálfarastarf í enska boltanum. Marco Luzzani/Getty Images Roberto De Zerbi mun í vikunni taka við sem nýr þjálfari Tottenham á Englandi eftir uppsögn Igors Tudor um helgina. Hann vill heimsmeistara með sér til Lundúna.
De Zerbi hefur sjö leiki til að halda Tottenham í ensku úrvalsdeildinni og er sagður taka við þjálfarastarfinu í vikunni. Hann þjálfaði síðast Marseille í Frakklandi en hætti þar snemma á þessu ári. Áður hafði Ítalinn náð fínasta árangri með Brighton á Englandi og snýr nú aftur í ensku úrvalsdeildina eftir tveggja ára fjarveru. De Zerbi hefur samkvæmt ítölskum fjölmiðlum boðið Alessandro Nesta, einum besta varnarmanni í sögu Ítalíu, að vera aðstoðarmaður sinn í Lundúnum. Nesta hefur gengið misvel á sínum ferli sem aðalþjálfari en hann hefur stýrt Miami FC, Perugia, Frosinone, Reggiana og Monza á árunum 2015 til 2025. Síðast var hann þjálfari Monza liðsins í byrjun árs 2025 en gekk illa og var rekinn frá félaginu í annað sinn á því sama tímabili. Hann hefur verið án starfs síðan, í tæpt ár. Nesta var áður frambærilegur leikmaður og burðarás í vörnum Lazio og AC Milan, auk ítalska landsliðsins. Hann vann ítalska meistaratitilinn einu sinni með fyrrnefnda liðinu og tvisvar með því síðarnefnda auk þess sem hann varð tvisvar Evrópumeistari með AC Milan, 2003 og 2007. Hann varð þá heimsmeistari með Ítalíu árið 2006 og lék alls 78 landsleiki á árunum 1996 til 2006.
Tottenham Hotspur Enski boltinn Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira