Man United gerði hærra tilboð í Bale Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 15:17 Gareth Bale vann Meistaradeildina fimm sinnum með Real Madrid. Getty/Vladimir Shtanko Gareth Bale hefur upplýst að Manchester United hafi gert hærra tilboð í hann en Real Madrid á meðan hann var hjá Tottenham en sagði að hann hefði verið staðráðinn í að fara til spænska risans.
Fyrrum landsliðsmaður Wales fór frá White Hart Lane á Bernabéu sumarið 2013 fyrir 85,3 milljónir punda sem gerði hann að dýrasta knattspyrnumanni heims á þeim tíma. Þetta voru félagaskipti sem gengu í gegn eftir langdregna sögu sem dróst á langinn sumarið 2013 og Bale talaði um hvernig United hafi verið eina liðið fyrir utan Real Madrid sem gerði tilboð í hann. Gareth Bale says Manchester United offered Tottenham more than the £85m Real Madrid paid, plus a player, in an attempt to sign him 😮💰 pic.twitter.com/lgnxqwSb04— ESPN UK (@ESPNUK) March 5, 2026 „Ég ræddi við David Moyes [þáverandi stjóra Manchester United] en í hjarta mínu var ég staðráðinn í að fara til Madrid,“ sagði Bale í hlaðvarpinu Stick to Football en ESPN segir frá. „Og ég var með samkomulag við Daniel Levy [framkvæmdastjóra Tottenham], meira eins og heiðursmannasamkomulag, bara svona, því hann vildi heldur ekki selja mig til keppinautar. Hann sagði: ‚Við viljum ekki styrkja annað lið,“ sagði Bale. „Þannig að ef lið frá Spáni, Ítalíu, hvar sem er, Þýskalandi, hvar sem það kynni að vera, kæmi inn, þá gæti ég hugsanlega farið þangað því ef við kæmumst ekki í Meistaradeildina. Við gerðum það ekki og þá mátti ég fara þangað. Þannig að við vorum með þetta heiðursmannasamkomulag þótt hann hafi gert þetta mjög erfitt,“ sagði Bale. „Ég held að ég hafi valið rétt miðað við síðustu tólf ár,“ bætti hann við. „Ég ræddi aldrei um launin við United. Ég komst ekki svo langt. Þeir buðu meiri pening til að kaupa mig og leikmann að auki en það varð aldrei neitt úr því, satt best að segja,“ sagði Bale. Bale vann fimm Meistaradeildartitla og þrjá spænska meistaratitla á níu ára tíma sínum þar og skoraði 106 mörk í 258 leikjum. Hann sneri aftur til Spurs á láni fyrir tímabilið 2020–21 áður en hann yfirgaf Real Madrid endanlega árið 2022.
Enski boltinn Spænski boltinn Manchester United Real Madrid CF Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjá meira