Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Aron Guðmundsson skrifar 22. febrúar 2026 09:38 Anton Stach skoraði gullfallegt mark beint úr aukaspyrnu fyrir Leeds United í gær Vísir/Getty Dramatík, glæsileg mörk og mikilvægur sigur Manchester City í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar stóðu upp úr í leikjum gærdagsins í deildinni. Öll mörk dagsins má finna hér neðar í fréttinni.
Manchester City minnkaði forskot á Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í tvö stig með 2-1 sigri á Newcastle United á Etihad í gærkvöldi. Nico O'Reilly skoraði bæði mörk heimamanna en Lewis Hall skoraði mark gestanna. Ekkert mark var skorað þegar West Ham United tók á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Þetta var fyrsta markalausa jafntefli Hamranna á tímabilinu. Chelsea fór illa að ráði sínu og gerði jafntefli gegn nýliðum Burnley á heimavelli, 1-1. Jöfnunarmark Burnley kom í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Aston Villa tapaði mikilvægum stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti gegn Leeds United á heimavelli í gær en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Gullfallegt mark Þjóðverjans Anton Stach beint úr aukaspyrnu kom Leeds United yfir í fyrri hálfleik og lengi vel leit út fyrir að það yrði eina mark leiksins. En undir lok venjulegs leiktíma tókst Tammy Abraham að jafna metin fyrir Aston Villa og tryggja þeim eitt stig. Á Gtech Community leikvanginum í Brentford tóku heimamenn á móti Brighton í leik sem var merkilegur fyrir þær sakir að þar varð James Milner, miðjumaður Brighton, leikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Leiknum lauk með 2-0 sigri Brighton en það voru Diego Gomez og Danny Welbeck sem skoruðu mörk liðsins í fyrri hálfleik. Fjórir leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag og eru þeir allir sýndir á sportrásum Sýnar. Þrír þeirra hefjast klukkan tvö, þar á meðal er leikur Nottingham Forest og Liverpool. Klukkan hálf fimm hefst svo Norður-Lundúna slagur Tottenham og Arsenal.
Enski boltinn Manchester City Newcastle United AFC Bournemouth West Ham United Chelsea FC Burnley FC Aston Villa FC Leeds United Brighton & Hove Albion Brentford FC Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira