Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. febrúar 2026 13:31 Benjamin Sesko var hetja Manchester United í uppbótartímanum. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Manchester United fagnaði þriðja sigrinum í röð undir stjórn Michael Carrick þegar Fulham kom í heimsókn í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Lokatölur 3-2 eftir mikla dramatík. Heimamenn misstu niður tveggja marka forystu en Benjamin Sesko skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Casemiro með mark og stoðsendingu United komst yfir á 19. mínútu þegar aukaspyrna Bruno Fernandes hitti hausinn á Casemiro sem stýrði skallanum vel í netið. Upphaflega var vítaspyrna dæmd þarna, en VAR dómarinn breytti ákvörðuninni. United gerði sér samt lítið fyrir og skoraði. Rauða djöflarnir leiddu nokkuð þægilega í hálfleik en seinni hálfleikurinn bauð upp á heljarinnar fjör. Casemiro lagði upp annað mark United, eftir að hafa unnið boltann á vallarhelmingi Fulham á 56. mínútu, fyrir samlanda sinn Matheus Cunha sem þrumaði boltanum í þaknetið. Ólöglegt hjá Fulham og United næstum því þremur yfir Jorge Cuenca, sem braut af sér í fyrsta marki United, kom boltanum síðan í netið fyrir Fulham. Mjög ljótt mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. United-menn prísuðu sig sæla og voru næstum því komnir þremur mörkum yfir en skot Benjamin Sesko small í stönginni. Tvö mörk með skömmu millibili undir lokin Fulham tók síðan völdin á lokamínútum leiksins og skoraði tvö mörk. Raul Jiménez minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot Harry Maguire. Kevin Macedo skoraði síðan jöfnunarmarkið á fyrstu mínútu uppbótartíma með stórglæsilegu skoti sem sveif yfir Senne Lammens í markinu. Sesko tryggði sigurinn Gestirnir héldu að þeir hefðu tryggt sér stigið en Benjamin Sesko tryggði Manchester United 3-2 sigur á fjórðu mínútu uppbótartíma, eftir aðra stoðsendingu Bruno Fernandes sneri framherjinn vel í vítateignum og slúttaði fagmannlega. Sigurinn kom United upp í fjórða sætið, stigi fyrir ofan Chelsea. Fulham situr í áttunda sætinu. Enski boltinn