Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Aron Guðmundsson skrifar 12. janúar 2026 19:01 Hákon Rafn, leikmaður Brentford Mike Egerton/Getty Images Búið er að draga í fjórðu umferð enska bikarsins í fótbolta. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Aston Villa og Newcastle United. Íslendingalið voru í pottinum Hákon Rafn Valdimarsson og félagar hans í Brentford mæta spútnikliði Macclesfield.
Dregið var nú rétt áðan í fjórðu umferðina og fari svo að Liverpool beri sigur úr býtum gegn Barnsley í kvöld mun liðið mæta Brighton í næstu umferð en Brighton sló út Manchester United þegar liðin mættust á Old Trafford í gær. Athyglisverð viðureign gæti verið í uppsiglingu fyrir Manchester City, Því sá möguleiki er fyrir hendi að liðið mæti nágrannaliði sínu Salford City sem er í eigu fyrrverandi leikmanna Manchester United. Salford City og Swindon mætast þann 20.janúar næstkomandi í bikarnum og berjast um sæti í næstu umferð í leik gegn Manchester City. Topplið ensku úrvalsdeildarinnar Arsenal fékk hagstæðan drátt því Skytturnar munu mæta Wigan á heimavelli í fjórðu umferðinni. Þrjú Íslendingalið voru í pottinum. Grimsby, með Jason Daða Svanþórsson innanborðs, mun mæta Wolves í fjórðu umferðinni og Birmingham City, lið Willums Þórs Willumssonar og Alfonsar Sampsted tekur á móti Leeds United. Þá mun lið Hákons Rafns Valdimarssonar landsliðsmarkvarðar, Brentford heimsækja utandeildarlið Macclesfield sem gerði sér lítið fyrir og sló út ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace í þriðju umferðinni.Fjórða umferð enska bikarsins: Liverpool eða Barnsley vs Brighton Stoke City - Fulham Oxford Utd - Sunderland Southampton - Leicester Wrexham - Ipswich Arsenal - Wigan Hull City - Chelsea Burton - West Ham Burnley - Mansfield Norwich - West Brom Port Vale - Bristol City Grimsby - Wolves Aston Villa - Newcastle Man City - Salford City or Swindon Macclesfield - Brentford Birmingham - Leeds
Enski boltinn Fótbolti Brentford FC Liverpool FC Brighton & Hove Albion Fulham FC Sunderland AFC Arsenal FC Chelsea FC West Ham United Wolverhampton Wanderers Aston Villa FC Newcastle United Manchester City Leeds United Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira