Finnur fyrsti óperustjórinn Lovísa Arnardóttir skrifar 11. janúar 2026 11:39 Finnur hefur staðgóða reynslu og þekkingu á vettvangi óperulista og var fastráðinn við óperur bæði í Englandi og Þýskalandi en þess utan sungið við óperuhús víða um heim. Aðsend Finnur Bjarnason hefur verið skipaður óperustjóri í Þjóðaróperunni í Þjóðleikhúsinu. Finnur er skipaður til fimm ára en hann er sá fyrsti eftir að Alþingi samþykkti ný lög um stofnun Óperu undir hatti Þjóðleikhússins.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að Jóhann Páll Jóhannsson hafi skipað Finn frá og með 15. janúar næstkomandi. Jóhann Páll tók við skipunarferlinu í desember síðastliðnum af Loga Einarssyni, menningarmálaráðherra. Eftir að hafa kynnt sér álitsgerð hæfnisnefndar ákvað Jóhann Páll að taka viðtöl við þá fjóra umsækjendur sem þóttu samkvæmt nefndinni fullnægja best hæfnisskilyrðum um embættið, áður en hann tæki endanlega ákvörðun. Samkvæmt heimildum Vísis voru, auk Finns, þeir Bjarni Thor Kristinsson og Þorleifur Örn metnir hæfir af nefndinni. Vísir hefur ekki upplýsingar um þann fjórða sem tekið var viðtal við en allt sóttu ellefu um stöðuna. Finnur í verkefni í ráðuneyti vegna stofnunar þjóðaróperu Finnur var í nóvember fyrir tveimur árum ráðinn verkefnisstjóri hjá menningarráðuneytinu vegna stofnunar þjóðaróperu. Hann hefur því unnið náið innan ráðuneytis Loga Einarssonar sem taldi sig ekki hæfan til að taka ákvörðun um ráðninguna. Því var ráðningin færð yfir í ráðuneyti Jóhanns Páls en hann er umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. Fjórir umsækjendur voru þannig samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins boðaðir í viðtöl 22. desember 2025. Allir viðmælendur fengu sams konar spurningar. Þeir voru samkvæmt tilkynningu spurðir út í framtíðarsýn óperunnar, hvernig reynsla þeirra og þekking myndi nýtast í embætti óperustjóra, hvernig þeir sæju fyrir sér samstarf við aðrar stofnanir, hverjir væru styrkleikar þeirra og veikleikar og hvers vegna ætti að velja þá í embættið. Eftir mat á þessum fjórum ofangreindum umsækjendum var það niðurstaða ráðherra að Finnur Bjarnason uppfyllti best þær hæfniskröfur sem tilgreindar eru í auglýsingu um embætti óperustjóra sem birt var 15. ágúst 2025 að undangengnu heildarmati allra hæfnisþátta fyrir embættið. Finnur Bjarnason hefur meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og tvö lokapróf á meistarastigi; Postgraduate Diploma Vocal Training og nám í óperuflutningi (Opera Course) við Guildhall School of Music & Drama. Finnur stundaði framhaldsnám við National Opera Studio í London og hefur lokið burtfararprófi í söng frá Tónskóla Sigursveins. Finnur hefur staðgóða reynslu og þekkingu á vettvangi óperulista og var fastráðinn við óperur bæði í Englandi og Þýskalandi en þess utan sungið við óperuhús víða um heim. Í gegnum störf sín hefur Finnur öðlast mikilvæga innsýn inn í starfsemi óperuhúsa.
Leikhús Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Menning Tónlist Þjóðaróperan Þjóðleikhúsið Vistaskipti Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Keppast um að minnast Stewarts Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira