Vara við eldingum á Suðausturlandi Lovísa Arnardóttir skrifar 8. janúar 2026 10:55 Myndin er úr safni og af eldingum í Bláskógabyggð. Sigurður Andri Sigvaldason Varað er við eldingum á Suðausturlandi. Gul viðvörun er í gildi þar til klukkan 22 í kvöld en viðvörun um eldingar í gildi til hádegis. Í viðvörun á vef Veðurstofunnar segir að eldingar geti verið á stöku stað.
Á vef Almannavarna um eldingar segir að fólk sé almennt ekki á varðbergi fyrir eldingum því það sé sjaldgæft á Íslandi. Samkvæmt Veðurstofunni sé fjöldi eldinga á bilinu 250 til 600 á ári. Átt þú myndefni sem sýnir eldingarnar? Þú mátt senda okkur myndir eða myndbönd á ritstjorn@visir.is. Tvær meginaðferðir eru samkvæmt vef almannavarna nýttar til að verjast tjóni af völdum eldinga. Í fyrsta lagi eru eldingar fangaðar, ýmist með stöngum eða vírum og leiddar beint til jarðar. Hins vegar eru til sérstakir yfirspennuvarar (e. surge arrester, n. overspennings beskytter) sem eru tengdir við rafleiðara og leiða straum til jarðar ef spenna fer yfir ákveðin mörk. Í báðum tilvikum er byggt á því að leiða strauminn til jarðar í gegnum jarðskaut. Jarðskaut húsa eru venjulega útfærð með koparleiðurum og/eða stöngum sem eru grafin og rekin í jörðu, auk sambindingar við pípukerfi húss og járnabindingu í sökkli. Gul veðurviðvörun er í gildi á Suðausturlandi þar til klukkan 22 í kvöld. Norðaustan 15 til 23 metrar á sekúndu og snjókoma, hvassast í Öræfum. Búast má við éljagangi og skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Í spá segir að afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum séu líklegar. Á vef Vegagerðar kemur fram þæfingsfærð og mjög slæmt skyggni sé á milli Fagurholtsmýrar og Freysness, þar sé eingöngu fært fyrir vel útbúna bíla. Snjóþekja og snjókoma er víða á öðrum leiðum.
Veður Umferð Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira