Víða allhvass vindur og rigning Atli Ísleifsson skrifar 12. desember 2025 07:16 Hiti á landinu verður á bilinu tvö til átta stig. Vísir/Vilhelm Óveðurslægðin frá í gær er nú í morgunsárið stödd um þrjú hundruð kílómetra suður af Reykjanesi, hreyfist í norðnorðaustur og grynnist smám saman.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði víða allhvöss eða hvöss suðaustan- og austanátt í dag, en hægari vestantil síðdegis. Rigning eða skúrir, einkum sunnan- og austanlands en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti á landinu verður á bilinu tvö til átta stig. „Talsvert var um eldingar á sunnanverðu landinu í gærkvöldi og í nótt. Áfram er hætt við eldingum á þeim slóðum, þótt mikið hafi dregið úr virkninni. Lægðin fer yfir landið í kvöld og nótt. Á morgun lægir og styttir upp, en síðdegis fer aðeins að blása af norðri. Þá verður næsta lægð á leið norður fyrir austan land, en hún á ekki að valda neinum usla hér á landi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Fremur hæg breytileg átt, en suðvestan strekkingur austanlands í fyrstu. Skúrir eða slydduél á Vestfjörðum, annars skýjað með köflum og að mestu þurrt. Snýst í norðan 5-13 um kvöldið. Hiti kringum frostmark síðdegis, en mildara syðst. Á sunnudag: Breytileg átt 5-13 og skúrir eða él. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins. Á mánudag: Austlæg átt og dálítil él norðanlands, en rigning eða slydda suðaustantil. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Norðlæg átt og þurrt, en dálítil él norðanlands. Heldur kólnandi. Á miðvikudag: Austanátt og slydda eða rigning, en snjókoma og áfram kalt á norðanverðu landinu. Á fimmtudag: Austlæg átt og dálítil rigning eða slydda.
Veður Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Innlent Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Innlent Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Innlent Fleiri fréttir Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Rigning öðru hverju Hitinn gæti náð fimmtán stigum á Sjómannadaginn Milt veður um helgina Nokkuð vætusamt og þungbúið en milt veður Allnokkrar smálægðir að hringsóla í grennd við landið Skýjað og víða skúrir Þungbúið og svalt austantil Hæg breytilegt átt en hiti allt að fimmtán stig Víða rigning með köflum og slydda eða snjókoma til fjalla austanlands Áfram snjór austantil og þæfingsfærð á Fjarðarheiði Gular viðvaranir vegna snjókomu Skúrir víða um land með strekkingi en lægir í kvöld Úrkomulítið sunnanlands en skúrir á Austurlandi Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Sjá meira