Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. september 2025 08:01 Á leið til Chelsea. EPA/Liselotte Sabroe Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur tilkynnt að félagið hafi náð samkomulagi við framherjann Emanuel Emegha. Mun hann ganga til liðs við félagið á næsta ári. Emegha spilar í dag fyrir Strasbourg í Frakklandi, liði með sömu eigendur og Chelsea.
Hinn 22 ára gamli Emegha hefur náð samkomulagi við Chelsea og mun skrifa undir sjö ára samning á næsta ári. Þangað til mun hann hins vegar halda áfram að spila í Frakklandi. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá því að þessi hollenski U-21 árs landsliðsmaður hafi hafnað liðum í ensku úrvalsdeildinni sem og liðum í Meistaradeild Evrópu til að ganga í raðir Chelsea. Þar segir einnig að yfirvonandi félagaskipti Emegha til félagsins hafi verið ástæðan fyrir því að Chelsea festi ekki kaup á nýjum framherja þegar ljóst var að Liam Delap yrði frá í 10-12 vikur vegna meiðsla. Emegha, sem er fyrirliði Strasbourg, hefur skorað 23 mörk í 57 leikjum fyrir félagið. Kaupin á honum undirstrika tengingu liðanna sem eru undir sama eignarhaldi. Ben Chilwell skipti til að mynda frá Chelsea til Strasbourg á lokadegi félagaskiptagluggans, hann var þá sjötti leikmaðurinn til að skipa milli liðanna í þeim glugga. Þar af eru þrír á láni hjá Strasbourg frá Chelsea en samkvæmt regluverki FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, mega lið mest lána þrjá leikmenn í eitt og sama liðið. Engar reglur eru um kaup og sölur leikmanna milli félaga undir sama eignarhaldi svo lengi sem kaupverðið endurspegli verðmæti leikmannanna á markaðnum. Chelsea er í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig að loknum þremur umferðum. Strasbourg er í 6. sæti frönsku deildarinnar með sex stig að loknum jafn mörgum umferðum.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Víkingur - Beer Sheva | Ísraelsmenn mæta í Víkina Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira