Dálítil væta en fremur hlýtt Atli Ísleifsson skrifar 5. ágúst 2025 07:02 Hiti á landinu verður á bilinu níu til átján stig yfir daginn og verður hlýjast norðaustanlands. Vísir/Anton Brink Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri, suðvestlægri eða breytilegri átt á landinu í dag. Það mun smám saman þykkna upp og má reikna með dálítilli vætu sunnan- og vestanlands upp úr hádegi, en skúrir á stöku stað í öðrum landshlutum.
Á vef Veðurstofunnar segir að í kvöld verði úrkomusvæðið komið austar og styttir þá upp vestanlands. Hiti á landinu verður á bilinu níu til átján stig yfir daginn og verður hlýjast norðaustanlands. „Hægur vindur í fyrramálið og dáliltar skúrir á víð og dreif, en suðlægari vindur með rigningu sunnantil seinnipartinn og um kvöldið. Á fimmtudag er komin smá lægð við vesturströndina og vindar því aust- eða suðaustlægir, væta í flestum landshlutum og heldur svalara,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og smá skúrir, en gengur í austan og norðaustan 3-10 m/s með rigningu eða súld S-til seinnipartinn. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi. Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og skúrir eða dálítil rigning. Hiti 8 til 15 stig, mildast á Norvesturlandi. Á föstudag: Norðlæg átt, 8-15 m/s, hvassast vestast og víða rigning, en rofar smám saman til sunnan heiða. Kólnar í veðri norðantil. Á laugardag: Norðvestlæg átt og rigning með köflum, en stöku skúrir syðra og fremur milt veður. Á sunnudag: Hægir vindar, úrkomulítið og hlýnandi veður. Á mánudag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu sunnan- og vestantil og hlýindum.
Veður Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Fleiri fréttir Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Sjá meira