Upgjörið: Vestri - KA 1-0 | Vestri á Ísafirði er alltaf Vestri Ragnar Heiðar Sigtryggsson skrifar 15. júní 2025 13:17 Frá leik Vestra á Ísafirði fyrr á tímabilinu Vísir/Anton Brink
Vestri tók á móti KA á Kerecis-vellinum á Ísafirði í Besta deild karla í knattspyrnu í dag. Heimamenn unnu 1–0 sigur og snéru þar með aftur á sigurbraut eftir tap í síðustu umferð. Leikurinn í dag byrjaði frekar rólega og voru um tuttugu mínútur búnar af leiknum þegar Vestri fór að taka aðeins yfir leikinn en aldrei nein almennileg hætta á ferð. Það var svo á 34. mínútu að Diego Montiel fær boltann vinstra meginn við teiginn, tekur eina gabbhreyfingu og sendir varnarmenn KA í grasið. Leggur hann svo í nærhornið fram hjá William við mikinn fögnuð flestra þeirra 315 sem voru mættir á völlinn í dag. Á 45. mínútu þurfti svo Ásgeir frá að hverfa eftir að hafa farið í grasið eftir baráttu við Fatai, í fallinu að þá fær Ásgeir spark í höfuðið og virðist hafa rotast. Algjör óviljaverk og vonum við að Ásgeir hljóti snöggan bata. Í seinni hálfleik var þetta mikið til það sama og í þeim fyrri en þó voru KA menn ívið betri. Varnarlína Vestramanna var þó skipulögð og tókst KA mönnum ekki að brjóta þá á bak aftur, þrátt fyrir harða atlögu, sérstaklega undir lok leiksins. Mikilvægur 1-0 sigur fyrir Vestra sem koma sér aftur á sigurbrautina eftir þrjú töp í síðustu fjórum leikjum og ætla þeir greinilega að halda sér í toppbaráttunni. KA menn hins vegar geta farið í fallsæti ef FH og Afturelding vinna sína leiki. Af hverju vann Vestri? Þeir skoruðu mark og héldu hreinu, það er bara svo einfalt. Vestraliðið fær ekki á sig mörg mörk og KA skorar ekki mörg á útivelli. Hverjir stóðu upp úr? Diego Montiel fær þetta í dag. Gerði vel í markinu og þegar upp er staðið er það sem skiptir máli. Dómarinn Ívar Orri var bara flottur í dag. Markmannsþjálfari KA var eitthvað ósáttur við hann og uppskar gult spjald en Ívar og hans teymi gerðu engin mistök í dag og ekkert út á þá að setja. Stemmning og umgjörð Flott veður í dag og 315 manns sem mættu á völlinn. Trommað og sungið allan leikinn. Sáttur með úrslitin í sérstökum leik Davíð Smára Lamude.vísir/Anton „Þetta var sérstakur leikur og mér fannst við vera ofan á í öllu í fyrri hálfleik. Fórum inn í hálfleik og ætluðum að skerpa aðeins á okkur og vera betri á boltanum. Það kom gjörsamlega ekkert út úr því,“ sagði Davíð Smári eftir leik. Hann sagði einnig að sínir menn hefðu átt betri færi bæði í fyrri og seinni hálfleik. KA menn sóttu á Vestra í seinni og Davíð var sammála því að honum leið ekkert alltof vel og menn væru kannski orðnir full værukærir í því að líða vel að verjast. „Ég er bara spenntur fyrir því og verður erfiður leikur, sérstaklega komandi úr svona leik,“ sagði Davíð um næsta leik þegar nágrannar KA í Þór koma í heimsókn í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn.
Besta deild karla Vestri KA Tengdar fréttir „Liggjum á þeim allan tímann en inn vildi boltinn ekki“ „Þetta var ekki leikur sem við máttum tapa,“ sagði súr Hallgrímur Jónasson eftir 1-0 tap sinna manna í KA á Ísafirði þegar liðið mætti Vestra í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. 15. júní 2025 17:39
„Liggjum á þeim allan tímann en inn vildi boltinn ekki“ „Þetta var ekki leikur sem við máttum tapa,“ sagði súr Hallgrímur Jónasson eftir 1-0 tap sinna manna í KA á Ísafirði þegar liðið mætti Vestra í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. 15. júní 2025 17:39