Daninn orðinn stjóri Tottenham Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2025 19:30 Thomas Frank er formlega tekinn við sem knattspyrnustjóri Tottenham. Getty/Luke Walker Enska knattspyrnufélagið Tottenham staðfesti í dag ráðninguna á hinum danska Thomasi Frank í stöðu knattspyrnustjóra. Hann tekur við af Ange Postecoglou sem var rekinn á dögunum eftir tvö ár í starfi.
Samningur Franks við Tottenham er til þriggja ára. Hann tekur við Tottenham eftir að hafa stýrt Brentford síðustu sjö ár, og þar áður verið aðstoðarstjóri, og fær Brentford tíu milljónir punda frá Tottenham eða jafnvirði um 1,7 milljarðs króna. View this post on Instagram A post shared by Tottenham Hotspur (@spursofficial) Á heimasíðu Tottenham segir að Frank hafi umturnað liði Brentford á tíma sínum hjá félaginu og farið langt fram úr væntingum. Hann sé einn einn framsæknasti og nýstárlegasti þjálfarinn í heiminum í dag og hafi sannað sig í þróun leikmanna og liðs. Postecoglou var rekinn þrátt fyrir að Tottenham næði að vinna sinn fyrsta titil í sautján ár á seinna tímabili liðsins undir hans stjórn, með því að vinna Evrópudeildina. Liðið átti skelfilega leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og endaði þar í 17. sæti en Brentford, undir stjórn Franks, endaði í 10. sæti þrátt fyrir að hafa selt stjörnuframherjann Ivan Toney fyrir tímabilið. Thomas Frank tók við Brentford haustið 2018 þegar liðið sat um miðja næstefstu deild. Undir hans stjórn fór liðið tvisvar í úrslitaleik upp á sæti í ensku úrvalsdeildinni og vann í seinna skiptið, árið 2021. Brentford náði sínum besta árangri á nýliðinni leiktíð og daðraði lengi vel við Evrópubaráttu. Frank verður að mestu áfram með sama teymi og hjá Brentford með sér en þó bætist við Andreas Georgson sem þjálfari frá Manchester United.
Enski boltinn Mest lesið „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira