Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. júní 2025 07:00 Reynir Snær, sem notast við listamannsnafnið Creature of Habit, og Ómar Guðjónsson voru að senda frá sér ábreiðu af laginu Þrek og tár. Guðmundur Kristinn Jónsson „Það er óhætt að segja að Ómar hafi verið og sé enn eitt af mínum átrúnaðargoðum,“ segir tónlistarmaðurinn Reynir Snær sem notast við listamannsnafnið Creature of Habit. Hann og Ómar Guðjónsson voru að senda frá sér ábreiðu af sögulega laginu Þrek og tár og frumsýna hér tónlistarmyndband.
Hér má sjá tónlistarmyndbandið: Klippa: Þrek og tár - Creature of Habit & Ómar Guðjónsson Reynir Snær hefur komið víða að í tónlistinni og spilað með flestöllum vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Hann er mikill gítarsnillingur og ákvað á árinu að fara að gefa út eigin tónlist. „Síðastliðin mánaðamót gaf ég út mína fyrstu EP plötu og á henni er ein ábreiða af lagi sem hefur lengi vel verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er sömuleiðis rótgróið í íslensku þjóðarsálina.“ Með átrúnaðargoðinu Lagið sem um ræðir er Þrek og tár sem flest þekkja í ódauðlegum flutningi Hauks Morthens og Erlu Þorsteinsdóttur. „Þar sem þetta er dúett á milli karls og konu þá langaði mig að halda í það samspil í minni ósungnu útgáfu. Í upphafi lagsins spila ég á groddalegan baríton gítar og skipti yfir í svokallaðan lap steel gítar sem ég get spilað fljótandi háa tóna með.“ View this post on Instagram A post shared by Reynir Snær // Creature Of Habit (@reynirsnaer) Reyni langaði að taka þetta lengra og gera lifandi flutning af ábreiðunni. „Ég fékk því Ómar Guðjónsson til liðs við mig. Ég hef kannast við Ómar frá árinu 2012, þá var ég átján ára gamall og heyrði frá Sauðárkróki alla leið í Garðabæinn til að hitta hann í tveggja klukkustunda gítartíma. Það er óhætt að segja að Ómar hafi verið og sé enn eitt af mínum átrúnaðargoðum.“ Galdrahljóðfæri og galdramaður Allt frá árinu 2012 hafa leiðir þeirra vina legið saman hér og þar. Þeir spiluðu þó saman í fyrsta sinn í fyrra og í kjölfarið hafa nokkur gigg komið. „Mér þykir mikið vænt um að hafa fengið Ómar með mér í þennan flutning þar sem hann er einn af þeim sem hefur veitt mér mikinn innblástur til að framleiða eigin músík. Þrátt fyrir að hafa einungis farið í þennan eina gítartímar fyrir vel rúmum áratugi síðan þá hef ég tekið mikið frá honum bæði í tali og tónum, líklega honum óafvitandi. Í flutningnum spila ég á umræddan baríton gítar og Ómar leikur á pedal steel sem er galdrahljóðfæri og Ómar galdramaður.“ Reynir Snær með átrúnaðargoðinu Ómari Guðjónssyni. Guðmundur Kristinn Jónsson Upptökur fóru fram í pappírslager Ólafs Þorsteinssonar ehf. Myndbandið er tekið upp á gamla filmuvel í eigu Kidda Hjálms (Kristins Jónssonar) sem mixaði sömuleiðis hljóð. Upptöku á hljóði og mynd sá Gestur Sveinsson um en hann klippti einnig myndbandið. „Við tökum óvart upp aukalag í þessu sessioni því það voru nokkrar mínútur eftir á filmunni í myndavélinni. Lagið er af væntanlegri plötu Ómars og heitir Amma Lukka. Hægt er að nálgast allan flutninginn á Youtube og einnig hlusta á hann á streymisveitunni Spotify.“
Tónlist Menning Skagafjörður Garðabær Tónlistarnám Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Risastór tappakollur í fallegri íbúð Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira