Henry segir að Arsenal hafi ekki staðið undir væntingum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. maí 2025 16:31 Thierry Henry skoraði 228 mörk fyrir Arsenal á sínum tíma. getty/Jacopo M. Raule Markahæsti leikmaður í sögu Arsenal, Thierry Henry, segir að liðið hafi ekki staðið undir væntingum undanfarin þrjú ár.
Arsenal endaði í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili en þetta er þriðja árið í röð sem liðið endar þar. Skytturnar voru svo slegnar úr leik í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og deildabikarsins. Arsenal hefur ekki unnið titil síðan liðið varð bikarmeistari vorið 2020, á fyrsta tímabili Mikels Arteta við stjórnvölinn. „Ég er ekki að segja að ég sé vonsvikinn með Arsenal en það er eðlilegt að fólk spyrji spurninga um hvað liðið sé að gera,“ sagði Henry í hlaðvarpinu Stick to Football. „Ég skil að þegar þú kemur í byrjun er þetta ekki þitt lið. Þú þarft allavega 3-4 félagaskiptaglugga til að breyta öllu sem þú vilt. Það tekur tíma og þú þarft að gefa stjóra tíma til að koma sínum áherslum á framfæri. Síðustu þrjú árin eða svo hefur Arsenal verið í stöðu þar sem þeir ættu allavega að hafa unnið einn titil eða komist í úrslitaleik.“ Henry segir að stuðningsmenn Arsenal ættu ef til vill að fara varlega í að gleðjast yfir óförum Manchester United undanfarin ár. „United hefur spilað í fimm úrslitaleikjum síðustu fimm árin. United sem allir hlæja að á meðan Arsenal hefur ekki komist í úrslitaleik. Svo ég skil þegar fólk spyr spurningarinnar hvort þú ættir ekki örugglega að vera að berjast um titil,“ sagði Frakkinn. Arteta var ráðinn stjóri Arsenal 20. desember 2019. Hann hefur stýrt liðinu í 290 leikjum; 169 þeirra hafa unnist, 55 endað með jafntefli og 66 tapast.
Enski boltinn Mest lesið „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira