Áfram norðanátt og sums staðar strekkingsvindur Atli Ísleifsson skrifar 26. maí 2025 07:11 Víða verða skúrir, en rigning um tíma sunnan- og austantil á landinu. Vísir/Vilhelm Skammt norðaustur af Færeyjum er hægfara lægð sem viðheldur norðanáttinni hjá okkur í dag og má reikna með fimm til þrettán metrum á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar segir að hvassast verður á Vestfjörðum en yfirleitt hægur vindur um landið suðvestanvert. Víða verða skúrir, en rigning um tíma sunnan- og austantil á landinu. „Dregur úr vætu, smáskúrir eftir hádegi en styttir upp vestanlands. Hiti yfirleitt á bilinu 7 til 13 stig. Síðan fjarlægist lægðin og dagana á eftir tekur við hálfgerð áttleysa. Búast má við skúrum, einkum síðdegis en einnig einhverjum sólarglennum. Hiti breytist lítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15 í dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en norðaustan 5-10 norðvestantil. Dálítil væta norðaustanlands, en skúrir á Suður- og Vesturlandi. Hiti 5 til 13 stig. Á miðvikudag og fimmtudag (uppstigningardagur): Breytileg átt 3-8 og allvíða skúrir, einkum síðdegis. Svipaður hiti áfram. Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og sums staðar skúrir, einkum síðdegis, en dálítil rigning suðvestantil um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Austanátt, víða hæg. Rigning af og til suðaustanlands, annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 8 til 15 stig. Á sunnudag (sjómannadagurinn): Norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og líkur á síðdegisskúrum. Áfram milt í veðri.
Veður Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fleiri fréttir Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Sjá meira