Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2025 09:31 Allt ætlaði um koll að keyra þegar Daniel Ballard skoraði sigurmarkið í uppbótartíma framlengingar. George Wood/Getty Images Sunderland sló eigið áhorfendamet í undanúrslitaeinvígi Chamionship deildarinnar og er á leið í úrslitaleikinn á Wembley eftir hádramatískan 3-2 sigur gegn Coventry í gærkvöldi.
Samanlagt voru 77.793 áhorfendur á undanúrslitaleikjunum tveimur en fyrra metið var 77.729 í einvígi Sunderland og Sheffield Wednesday árið 2022. 31.293 áhorfendur mættu á fyrri leikinn sem Sunderland vann 1-2. 46.630 áhorfendur voru svo mættir á leikvang ljósanna, heimavöll Sunderland, fyrir seinni leikinn í gær. Coventry komst yfir í leiknum og jafnaði einvígið, sem fór í framlengingu. Allt stefndi svo í vítaspyrnukeppni en Daniel Ballard skoraði sigurmarkið fyrir Sunderland í uppbótartíma framlengingarinnar. 'I'VE NEVER SEEN SCENES LIKE IT' 🗣️ pic.twitter.com/7kcZ7gTSIL— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) May 13, 2025 Sunderland fagnaði því 3-2 sigri í einvíginu, eftir að lagt ýmislegt á sig til að sigla sigrinum í höfn. Meðal annars dró félagið öll auglýsingaskiltin nær vellinum svo Coventry ætti erfiðara með að framkvæma löng innköst. En það bar allt saman árangur og Sunderland heldur áfram í úrslitaleikinn á Wembley, upp á sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili, gegn Sheffield United þann 24. maí.
Enski boltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira