Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Atli Ísleifsson skrifar 7. mars 2025 07:11 Hiti verður í kringum frostmark yfir daginn, en kaldara inn til landsins. Vísir/Vilhelm Dálítið lægðardrag teygir sig nú norður yfir landið og stjórnar veðrinu á landinu í dag. Áttin verður því breytileg, yfirleitt hægur vindur og allvíða él, en þurrt og bjart suðaustanlands fram á kvöld.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Hiti verður í kringum frostmark yfir daginn, en kaldara inn til landsins. „Fremur hæg norðlæg átt á morgun og líkur á snjókomu á Austurlandi. Þurrt að mestu í öðrum landshlutum og suðvestantil má búast við björtu og fallegu veðri. Frost 0 til 9 stig, kaldast í innsveitum. Á sunnudag verður veður svo áfram með rólegasta móti, suðvestan gola eða kaldi og stöku él, en bjart að mestu á Suðaustur- og Austurlandi. Hlýnar heldur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og stöku él, en dálítil snjókoma við austurströndina. Bjart að mestu á Suðvesturlandi. Frost víða 0 til 7 stig. Á sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað með köflum norðan- og vestanlands og líkur á stöku éljum, annars bjart að mestu. Heldur hlýnandi. Á mánudag: Vestan og norðvestan 5-15, hvassast norðaustantil. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en léttskýjað suðaustanlands. Hiti 0 til 6 stig að deginum. Á þriðjudag og miðvikudag: Vestlæg átt og bjart að mestu, en skýjað á Norðvestur- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Suðvestan- og vestanátt og skýjað með köflum. Hiti 1 til 7 stig yfir daginn.
Veður Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira