Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2024 07:12 Hiti verður víða á bilinu fimm til tíu stig. Vísir/Vilhelm Lægðir á Grænlandssundi og hæð yfir Skotlandi stýra veðrinu í da gen draga mun úr vindi og úrkomu með morgninum.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði suðvestankaldi eða strekkingur síðdegis og skúrir eða slydduél, en þurrt að kalla á Norðausturlandi. Hiti verðurvíða á bilinu fimm til tíu stig. Gular viðvaranir eru enn víða í gildi vegna asahláku. Í nótt hefur verið talsverð eða mikil rigning sunnan og vestanlands og asahláka með vatnavöxtum. Nokkur aurflóð féllu á Vestfjörðum í gærkvöldi, en fyrst rann lítið flóð úr Eyrarhlíð yfir Hnífsdalsveg. Vegurinn var fljótt hreinsaður og opnaður. Síðar um kvöldið rann síðan annað flóð í Bjarnardal í Önundarfirði og lokaði veglinum um Gemlufallsheiði. Vegir á svæðinu eru færir samkvæmt upplýsingasíðu Vegagerðarinnar, en ökumenn eru beðnir um að fara með gát enda gæti verið grjót á veginum. Á Suðurlandi flæddi svo vatn yfir veginn beggja vegna við brúnna yfir Bakkakotsá og þar er umferðarstýring á svæðinu að sögn Vegagerðar. „Í kvöld bætir heldur í vind á norðaustanverðu landinu, hvassviðri eða stormur þar og snarpar vindhviður við fjöll. Kólnar í veðri. Hægari suðvestlæg átt á morgun. Skýjað með köflum og stöku él vestanlands, hiti um eða yfir frostmarki. Léttskýjað fyrir austan og frost 0 til 5 stig,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestan 8-15 m/s, en lægir síðdegis. Víða bjart veður, en él á stöku stað. Hiti í kringum frostmark. Á miðvikudag: Suðaustan 13-20 og talsverð rigning eða slydda, en úrkomuminna á Norðausturlandi. Hlýnar í veðri, hiti 2 til 9 stig síðdegis. Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 og slydduél, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig. Snýst í norðanátt með snjókomu norðvestanlands um kvöldið og kólnar. Á föstudag: Norðvestan 10-18 og él fyrir norðan, en bjart með köflum sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig. Á laugardag: Gengur í hvassa sunnanátt með slyddu eða rigningu, en suðvestlægari og él um kvöldið. Hlýnar um tíma. Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum, en bjartviðri norðaustanlands. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira