Suðvestlæg átt og víða dálítil rigning Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2024 06:51 Hiti á landinu verður yfirleitt á bilinu fimm til ellefu stig í dag. Vísir/Vilhelm Grunn lægð á Grænlandshafi og hæð fyrir sunnan land beina nú suðvestlægri átt til landsins og má gera ráð fyrir að verði víða kaldi eða strekkingur í dag, súld eða dálítil rigning. Þó verður þurrt að mestu um landið austanvert.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði yfirleitt á bilinu fimm til ellefu stig. „Hægari vindur á morgun og bætir heldur í úrkomu, einkum norðvestantil, en áfram þurrt á Suðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld. Hiti breytist lítið. Norðaustan 8-15 m/s á fimmtudag og væta með köflum, en það styttir smám saman upp norðan- og vestanlands. Síðdegis hvessir svo syðst á landinu. Kólnar í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 13 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 3-10 m/s og væta með köflum, en samfelld rigning norðvestantil. Lengst af þurrt á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti 5 til 11 stig. Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 og rigning með köflum, en sums staðar slydda fyrir norðan. Úrkomulítið vestanlands síðdegis og hvessir við suðausturströndina. Hiti 2 til 9 stig að deginum, mildast suðvestantil. Á föstudag og laugardag: Norðaustan 8-15, en hvassara suðaustantil. Stöku él um landið norðaustanvert, en lengst af þurrt og bjart á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, mildast sunnanlands. Á sunnudag og mánudag: Norðaustlæg átt og dálítil él, en bjartviðri á Suðvestur- og Vesturlandi. Fremur svalt.
Veður Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Sjá meira