Lægðardrag þokast suður Atli Ísleifsson skrifar 27. september 2024 07:07 Hiti verður á bilinu tvö til níu stig, en í kringum frostmark norðaustanlands. Vísir/Vilhelm Yfir landinu er nú dálítið lægðardrag sem þokast suður. Gera má ráð fyrir dátítilli rigningu suðaustantil fram eftir degi. Það mun hins vegar létta heldur til vestanlands og í kvöld má búast við stöku éljum á norðausturhorninu.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að hiti verði á bilinu tvö til níu stig, en í kringum frostmark norðaustanlands. „Á morgun verður hægfara lægðasvæði fyrir sunnan og vestan land. Austan kaldi og rigning eða slydda með köflum, en hægari og úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Áfram svalt í veðri. Snýst í norðlæga átt á sunnudag og styttir um um landið vestanvert, en rigning eða slydda eystra,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan 8-13 m/s við suðvesturströndina, annars hægari vindur. Víða rigning eða slydda, en úrkomulítið austanlands. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, mildast suðvestantil. Á sunnudag: Austan og norðaustan 5-13. Rigning eða slydda með köflum, en styttir upp um landið suðvestanvert. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt, en stöku él norðaustanlands. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en kringum frostmark norðan heiða. Á þriðjudag: Suðvestanátt og fer að rigna um landið vestanvert, en þurrt austantil. Hiti 2 til 8 stig. Á miðvikudag: Suðaustanátt og rigning, en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 3 til 10 stig. Á fimmtudag: Norðaustanátt og rigning, en styttir upp vestanlands.
Veður Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Suðvestanátt með skúrum í dag Austanátt og úrkomulítið Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld Milt, bjart og hlýtt á Suðvesturlandi í dag Allt að tólf stiga hiti í dag og gæti náð sextán stigum á morgun Stöku skúr síðdegis sunnan- og vestanlands Hæglætisveður eftir annasama kosninganótt Hvasst og blautt víða Milt veður en bætir í úrkomu þegar líður á daginn Útlit fyrir austanátt á kjördag Engin ávísun á sól og blíðu Víða strekkingsvindur og allnokkur úrkoma norðantil Suðvestanátt og væta í flestum landshlutum Skýjað með köflum en styttir svo upp Spáir mildu áfram en útlit fyrir rigningu Víða þurrt en skúrir eða él vestast á landinu Svalri norðlægri átt beint til landsins Áfram él norðan- og austantil en bjart annars staðar Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Bjart suðvestantil en él norðan- og austanlands Útlit fyrir kalda norðanátt fram eftir viku Áframhaldandi norðanátt og stöku él Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Sjá meira