Bíó og sjónvarp

Sá Dune tvö hundruð sinnum og er búinn að fara ní­tján sinnum á Dune 2 í bíó

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Timothee Chalamet og Zendaya eru í aðalhlutverkum í Dune: Part Two. Mac J. hefur horft á þau nítján sinnum í IMAX.
Timothee Chalamet og Zendaya eru í aðalhlutverkum í Dune: Part Two. Mac J. hefur horft á þau nítján sinnum í IMAX. Warner Bros.

Geimóperan Dune 2 er á allra vörum þessa dagana. Einn kvikmyndaunnandi hefur séð hana nítján sinnum í bíó en á samt enn langt í land með að sjá hana jafnoft og hann sá fyrri myndina. Fyrri myndina hefur hann horft á rúmlega 200 sinnum.

Eftir þurrkatíð í Covid er fólk farið að flykkjast í bíóhús að nýju. Fólk virðist þyrsta í langar epískar myndir sem mótsvar við hraðanum og óreiðunni sem einkennir samfélagsmiðla. Síðasta sumar var Barbenheimer ráðandi í allri menningarumræðu enda einn stærsti kvikmyndaviðburður síðustu ára.

Fyrr í þessum mánuði kom út stórmyndin Dune: Part Two. Myndin hefur notið mikilla vinsælda hjá bíóhúsagestum, hefur rakað inn hálfum milljarði dala (sem er meira en fyrri myndin gerði) og hlotið mikið lof gagnrýnanda. 

Þar að auki hefur verið rætt og ritað mikið um myndina og hún mímuð í döðlur. Einn tiltekinn kvikmyndaunnandi hefur gert Dune-myndirnar að sérstöku áhugamáli sínu.

Fékk Dune á heilann

Sá heitir Mac J. og hefur ekki viljað láta eftirnafns síns getið í fjölmiðlum. Hann vakti athygli nýverið á Twitter þegar hann deildi því í hvert skipti sem hann fór að sjá Dune: Part Two í bíó. Þegar þessi grein er skrifuð hefur hann séð hana nítján sinnum, sirka einu sinni á dag.

Í samtali við fréttamiðilinn Inverse segist Mac hafa lesið bókina Dune fyrst árið 2018 og hafi þá strax fengið söguna á heilann. Þegar Dune: Part One kom út árið 2021 var Mac í menntaskóla og sá hann myndina þá tuttugu sinnum í bíó og rúmlega 200 sinnum á streymisveitum. Það hafi orðið að áhugamáli að horfa á Dune aftur og aftur.

Hann segir Dune hafa orðið að eins konar hljóðrás lífs hans. „Ég átti ekkert mjög virkt félagslíf í menntaskóla og eyddi mestum frítíma mínum í að lesa eða læra,“ segir hann.

„Oft kveikti ég á henni og var bara með hana í bakgrunninum,“ segir hann um myndina. Á endanum þurfti hann ekki einu sinni skjá til að upplifa myndina, hún var orðin samgróin honum. 

„Ég kann handritið utan að og var vanur að skrifa það upp eftir minni ef mér leiddist,“ segir hann.

Hér má sjá Letterboxd-aðgang Mac þar sem hann hefur skráð áhorf sitt á myndinni, heil nítján skipti. Myndin fær fimm stjörnur af fimm mögulegum í hans bókum.

Stundum tvisvar á dag

Eftir þriggja ára bið er framhaldið loksins komið í bíó og þó Mac sé í háskólanámi þá hefur það ekki stoppað hann frá því að fara ítrekað í bíó að sjá myndina.

„Það verður að horfa á hana í IMAX,“ segir hann og bætir við að upplifunin sé ekki sú sama á venjulegum skjá. Hann geti ekki ímyndað sér að horfa á hana á streymisveitum og ætlar í sérstakt ferðalag til að ná einni af 70mm IMAX-sýningunum.

Það er ekki ódýrt að fara í bíó en Mac hefur samt fjórum sinnum farið að sjá hana tvisvar á einum degi. Í staðinn sleppir hann því að kaupa sér popp og gos og laumar rúsínum og granólastykkjum inn í salinn í staðinn.

Aðspurður hvers vegna hann sé búinn að horfa svona oft á Dune-myndirnar segir hann að myndir Denis Villeneuve séu svo fullar af smáatriðum að maður rekist alltaf á eitthvað nýtt í hvert skipti. Það er spurning hvaða smáatriði hann rakst á í 200. áhorfi.


Tengdar fréttir

Dauðvona maður horfði á Dune 2 í fartölvu leikstjórans

Kvikmyndin Dune Part 2 eftir Denis Villeneuve hefur vakið mikla lukku í kvikmyndahúsum um heiminn allan eftir að hún var frumsýnd á dögunum. Tveir menn fengu að horfa á myndina í fartölvu leikstjórans á sjúkrahúsi í Quebec í Kanada, sex vikum á undan öðrum.

Fresta frumsýningu Dune vegna verkfalls

Forsvarsmenn Warner Bros hafa ákveðið að fresta frumsýningu kvikmyndarinnar Dune: Part Two um rúma fjóra mánuði vegna verkfalls leikara. Timothée Chalamet, Zendaya og aðrir leikarar geta annars ekki tekið þátt í að kynna myndina vegna verkfalls leikara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×