Veður

Víða vindur á landinu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Hæð yfir Grænlandi og lægð við Noreg beina norðlægri átt að Íslandi í dag. Þetta kemur fram í textalýsingu Veðurstofunnar.

Víða verður vindur í dag, en hvassast verður austantil á landinu. Á suðurhluta landsins verður þurrt og bjart veður víða, en á Norðurlandi og Austurlandi má búast við dálitlum éljum. Búist er við því að frost verði núll til fimm stig, en kólna mun frekar í kvöld.

Á morgun verður áttin breytileg og vindur yfirleitt hægari. Víða verður bjartviðri og frost eitt til tólf stig. Síðdegis er búist við því hægt vaxandi sunnanátt komi og að smám saman muni hlýna. Þá mun þykkna upp vestantil á landinu og seint annað kvöld er útlit fyrir rigningu eða snjókomu á þeim slóðum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:

Breytileg átt, víða 5-13 m/s og bjart með köflum. Frost 1 til 12 stig. Vaxandi sunnanátt um kvöldið og þykknar upp vestantil með slyddu eða snjókomu. Hlýnar í veðri.

Á mánudag:

Sunnan 13-23 um morguninn, hvassast í vindstrengjum norðanlands, en dregur síðan smám saman úr vindi. Víða rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 2 til 9 stig.

Á þriðjudag:

Norðvestan og norðan 10-18 og kólnar með snjókomu eða éljum, en styttir upp sunnanlands. Frost 0 til 8 stig síðdegis og dregur úr vindi og ofankomu.

Á miðvikudag:

Suðlæg átt og slydda eða snjókoma með köflum, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti kringum frostmark.

Á fimmtudag:

Ákveðin norðanátt og snjókoma eða slydda, en úrkomulítið um landið suðvestanvert. Heldur kólnandi.

Á föstudag:

Norðanátt og snjókoma, en þurrt að kalla sunnan- og vestantil. Svalt í veðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×