Íslenski boltinn

Vanda kveður: „Munaði hárs­breidd að FIFA tæki yfir starf­semi KSÍ“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Vanda Sigurgeirsdóttir lætur af störfum á morgun, laugardag.
Vanda Sigurgeirsdóttir lætur af störfum á morgun, laugardag. vísir/arnar

Á morgun, laugardag, fer ársþing Knattspyrnusambands Íslands fram. Þar mun Vanda Sigurgeirsdóttir láta af störfum sem formaður sambandsins.

Hin 58 ára gamla Vanda tók við starfi formanns í október 2021 eftir að Guðni Bergsson sagði af sér líkt og öll stjórn sambandsins í kjölfar gagnrýni á hvernig sambandið höndlaði meint kynferðisafbrot landsliðsmanna. Var stjórn sambandsins ásökuð um þöggun og meðvirkni.

Vanda hefur nú birt það sem kalla má kveðjupistil á vef KSÍ. Þar fer hún yfir víðan völl en pistilinn í heild sinni má lesa á vef KSÍ.

Undir lokin fer hún yfir það þegar hún steig fyrst inn í starfið og þann ólgusjó sem sambandið var í. Það munaði hreinlega minnstu að Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, var næstum búið að taka yfir starfsemi KSÍ.

„Haustið 2021 tók við að mestu ný stjórn og ég sem nýr formaður. Verkefnið var ærið, við tókum við í mesta ólgusjó í sögu KSÍ. Við þurftum ekki aðeins að fást við málefni fótboltans, eins og stjórnir á undan okkur höfðu gert, heldur tókumst við einnig á við aðstæður sem ollu því að aðeins munaði hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ.

Fundir voru því margir og langir, við, ásamt starfsfólki KSÍ vorum vakin og sofin yfir verkefninu - sem fólst meðal annars í að bæta öryggi allra, búa til verkferla, koma á fræðslu, setja gerð nýrra siðareglna í gang, fara í samstarf með Barnaheillum og í leiðinni að koma okkur út úr storminum.

Þetta hefur tekist með gríðarlegri vinnu og fyrir þetta ber að þakka. Mig langar því að þakka af öllu mínu hjarta því fólki sem gaf kost á sér í stjórn, þegar enginn annar gerði það, þakka starfsfólki KSÍ fyrir þeirra ómetanlegu störf í þessu krefjandi verkefni og þakka núverandi stjórn fyrir afar farsælt samstarf gegnum þessa öldudali og yfir í nokkuð lygnan sjó.“

Kosið verður um nýjan formann KSÍ á morgun og fylgst verður með gangi mála hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Guðni: Hefði ég átt að fara í þetta viðtal? Nei

Guðni Bergsson, frambjóðandi í formannskosningu Knattspyrnusambands Íslands, svaraði í dag fyrir gagnrýni á störf sín þegar hann var áður formaður KSÍ. Guðni segir að málin sem urðu til þess að hann hafi sagt af sér hafi tekið mikið á sig og sína. Segist hafa tekið ábyrgð með því að hætta sem formaður og að hann sé nú reynslunni ríkari.

Varar við aftur­hvarfi KSÍ: „Mikil­­vægara var að verja of­beldis­­menn en brota­þola“

„Það er óbærilegt ef barátta hugrakkra brotaþola gegn ofurefli frægðar og vinsælda verður til lítils og allt verður eins og áður,“ skrifar Drífa Snædal, talskona Stígamóta, í grein á Vísi. Tilefnið er kjör á nýjum formanni Knattspyrnusambands Íslands og ósk um fullvissu þess að sambandið taki ekki skref aftur á bak í jafnréttisbaráttunni, í gamalt far.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×