Mbappé og fé­lagar sneru taflinu við í seinni hálf­leik

Kylian Mbappé skoraði opnunarmark leiksins 
Kylian Mbappé skoraði opnunarmark leiksins 

Paris Saint Germain vann 2-0 sigur á Real Sociedad í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Eftir erfiða byrjun voru það Kylian Mbappé og Bryan Barcola sem skoruðu mörkin í seinni hálfleik. 

Þetta var fyrsta tap Real Sociedad í Meistaradeildinni á þessu tímabili. PSG byrjaði leikinn illa en gestunum tókst ekki að nýta sér tækifærið. Mikel Merino komst næstur rétt fyrir hálfleikslok en skot hans hafnaði í slánni. 

Kylian Mbappé sneri aftur á völlinn en hann hefur verið að glíma við ökklameiðsli undanfarið. Hann stimplaði sig inn þegar hann skoraði opnunarmark leiksins eftir hornspyrnu snemma í seinni hálfleik. Skömmu síðar átti Mbappé svo skot sem markvörður Sociedad varði í þverslánna. 

Bryan Barcola tvöfaldaði forystuna með frábærri afgreiðslu eftir góðan undirbúning hjá Fabián Ruiz. 

Þetta var fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þau mætast aftur þann 5. mars næstkomandi. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira