Fótbolti

Sigur hjá Bayern og aftur skoraði Kane

Dagur Lárusson skrifar
Harry Kane í leiknum í kvöld.
Harry Kane í leiknum í kvöld. Vísir/Getty

Harry Kane hélt áfram markaskorun sinni fyrir Bayern Munchen er liðið sigraði Hoffenheim í þýska boltanum í kvöld.

Fyrir leikinn var Bayern Munchen í öðru sæti deildarinnar með 38 stig en með sigri gat liðið komist nær Bayer Leverkusen í efsta sætinu.

Jamal Musiala kom Bayern yfir á 18. mínútu eftir undirbúning frá Leroy Sané en næsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 70. mínútu þegar Musiala var aftur á ferðinni og skoraði sitt annað mark og aftur var það Sané sem lagði upp.

Allt stefndi í 2-0 sigur Bayern Munchen en Harry Kane vildi ekki láta sig vanta í markaskoruninni og náði hann að skora í uppbótartíma og staðan því 3-0 og það urðu lokatölur.

Eftir leikinn er Bayern komið með 41 stig í öðru sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×