Veður

Gengur í vestan­strekking með rigningu og slyddu

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu tvö til sex stig um hádegi.
Hiti á landinu verður á bilinu tvö til sex stig um hádegi. Vísir/Vilhelm

Lægð gengur til austurs yfir mitt landið í dag þar sem gengur í vestanstrekking sunnantil með rigningu eða slyddu og hlýnar í veðri.

Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tvö til sex stig um hádegi.

„Hægari austlæg eða breytileg átt fyrir norðan, snjókoma og vægt frost.

„Í kvöld verður lægðin komin austur fyrir land, verður vindurinn þá norðlægari, víða él og kólnar heldur.

Á morgun er útlit fyrir norðan- og norðvestanstrekking með éljum fyrir norðan, en stöku él suðvestanlands og bjartviðri suðaustantil. Frost 1 til 9 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðan og norðvestan 8-15 m/s, en 13-18 austast um kvöldið. Snjókoma fyrir norðan, en lítilsháttar él sunnantil. Frost 3 til 10 stig.

Á föstudag (vetrarsólstöður): Norðan og norðaustan 5-13 og él, en yfirleitt bjart um landið sunnanvert. Áfram kalt í veðri.

Á laugardag (Þorláksmessa): Austan 10-18 og dálítil él, en 18-23 með suðurströndinni. Þykknar upp sunnantil með snjókomu, en hægari vindur norðaustantil og úrkomuminna. Frost 0 til 8 stig.

Á sunnudag (aðfangadagur jóla): Ákveðin norðaustan- og norðanátt með snjókomu eða éljum, en úrkomuminna á Vesturlandi. Frost 0 til 5 stig.

Á mánudag (jóladagur): Norðaustlæg eða breytileg átt og víða dálítil él. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag (annar í jólum): Útlit fyrir austlæga átt og lítilsháttar él á víð og dreif. Kólnar í veðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×