Fótbolti

Tíu bestu frum­raunir landsliðskvenna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir, Fanney Inga Birkisdóttir og Olga Færseth létu allar mikið að sér kveða í sínum fyrsta landsleik.
Margrét Lára Viðarsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir, Fanney Inga Birkisdóttir og Olga Færseth létu allar mikið að sér kveða í sínum fyrsta landsleik. vísir

Markvörðurinn ungi, Fanney Inga Birkisdóttir, átti eftirminnilega frumraun með íslenska fótboltalandsliðinu sem vann Danmörku í fyrradag. Í tilefni þess fór Vísir yfir eftirminnilegustu frumraunir landsliðskvenna Íslands.

Fanney Inga Birkisdóttir

Valskonan unga lék sinn fyrsta landsleik þegar Ísland mætti Danmörku í lokaleik sínum í Þjóðadeildinni á þriðjudaginn. Miðað við frammistöðuna hefði mátt halda að Fanney væri þrítug og að spila sinn hundraðasta landsleik en ekki átján ára og að þreyta frumraun sína með A-landsliðinu. Fanney lék frábærlega í fræknum 0-1 sigri Íslands og í viðtali við RÚV eftir leikinn sagði landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson að þetta væri örugglega besta frumraun leikmanns í sögu landsliðsins. Fanney fékk níu í einkunn fyrir frammistöðu sína á Vísi.

„Svo til fullkomin frumraun hjá þessum 18 ára gamla markverði Vals sem öðlast hefur hellings reynslu á þessu tímabili, meðal annars í lokakeppni EM U19. Fanney Inga var öryggið uppmálað allan leikinn, óhrædd við að spila boltanum stutt á samherja þegar það var hægt og við að rífa til sín lausa bolta í teignum. Þurfti sjaldan að verja erfið skot en átti eina frábæra markvörslu,“ sagði í umsögn um frammistöðu Fanneyjar.

Margrét Lára Viðarsdóttir

Eyjakonan var aðeins sextán ára þegar hún lék sinn fyrsta landsleik í júní 2003. Margrét Lára kom inn á sem varamaður fyrir Málfríði Ernu Sigurðardóttur á 66. mínútu. Fjórum mínútum síðar var hún búin að gera það sem hún gerði best; að skora, með skalla af stuttu færi. Þarna hófst glæstur landsliðsferill Margrétar Láru sem skoraði 78 mörk í viðbót fyrir landsliðið. Hún er langlangmarkahæst í sögu þess.

Dóra María Lárusdóttir

Önnur landsliðshetja sem lék sinn fyrsta landsleik 2003, um haustið. Dóra María var átján ára leikmaður Vals þegar hún kom inn á sem varamaður í leik gegn Póllandi í undankeppni EM. Hún var ekki lengi að láta að sér kveða því hún skoraði fimm mínútum eftir að hún kom inn á, tíunda mark Íslands í 10-0 sigri. Dóra María þjónaði landsliðinu vel og lengi, spilaði alls 114 landsleiki og skoraði átján mörk. Hún varð yngsta íslenska landsliðskonan til að spila hundrað landsleiki.

Ingibjörg Sigurðardóttir

Grindvíkingurinn kom eins og stormsveipur inn í íslenska landsliðið og stimplaði sig strax inn í það með afgerandi hætti. Ingibjörg var nítján ára þegar hún lék sinn fyrsta landsleik þegar Ísland mætti Írlandi í vináttulandsleik í aðdraganda EM 2017. 

Ingibjörg Sigurðardóttir í fyrsta landsleiknum sem var í grenjandi rigningu í Dublin sumarið 2017.getty/Matt Browne

Hún lék frábærlega í íslensku vörninni í markalausu jafntefli og mánuði síðar byrjaði hún inn á í fyrsta leik Íslands á EM, gegn Frakklandi. Hún spilaði einnig leikinn gegn Sviss og hefur verið fastamaður í landsliðinu frá þessu eftirminnilega sumri 2017. Ingibjörg hefur alls leikið 57 landsleiki og þeir eiga eftir að verða miklu fleiri.

Sandra María Jessen

Sandra María sló í gegn þegar Þór/KA varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn sumarið 2012. Hún skoraði þá átján mörk í átján deildarleikjum og var markahæst í Pepsi deildinni ásamt Elínu Mettu Jessen. 

Þær léku báðar sinn fyrsta landsleik þegar Ísland mætti Ungverjalandi í undankeppni EM daginn fyrir þjóðhátíðardaginn 2012. Og það var kannski í takt við annað hjá sautján ára Söndru Maríu sumarið 2012 að hún skoraði í leiknum, þriðja mark Íslands í 3-0 sigri. Alls eru landsleikir Söndru Maríu orðnir 38 og mörkin sex.

Olga Færseth

Talandi um draumaár þá var árið 1994 mergjað hjá Olgu. Hún varð tvöfaldur meistari í bæði fótbolta (með Breiðabliki) og í körfubolta (með Keflavík) en auk þess var hún markahæsti leikmaðurinn í fótboltanum og valin besti leikmaðurinn í körfuboltanum. Í úrslitaeinvíginu í körfuboltanum vorið 1994 setti hún stigamet með því að skora 111 stig eða 22,2 stig í leik. Það met stóð í 22 ár. Hún skoraði síðan 24 mörk í 14 leikjum með Blikum í fótboltadeildinni og endaði fimm mörkum á undan næstu konu.

Úr umfjöllun Morgunblaðsins um sigur Íslands á Hollandi haustið 1994.skjáskot af timarit.is

Ekki nóg með það heldur skoraði Olga mark í sínum fyrsta fótboltalandsleik. Og það var heldur betur mikilvægt. Olga skoraði nefnilega eina markið í leik Hollands og Íslands í Rotterdam en með sigrinum tryggðu Íslendingar sér sæti í átta liða úrslitum EM. Þetta var fyrsta af fjórtán mörkum Olgu fyrir landsliðið í 54 leikjum.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir

Markvörðurinn var aðeins sextán ára þegar hún lék sinn fyrsta landsleik á Pinatar mótinu á Spáni í mars 2020 og er enn yngsti landsliðsmarkvörður Íslands, bæði í karla- og kvennaflokki.

Leikurinn var gegn Norður-Írlandi og Cecilía gerði sér lítið fyrir og hélt hreinu í 0-1 sigri Íslands. Cecilía er með frábæra tölfræði með landsliðinu. Hún hefur leikið ellefu landsleiki og haldið átta sinnum hreinu.

Sveindís Jane Jónsdóttir

Annar leikmaður sem fékk sitt fyrsta tækifæri með A-landsliðinu undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar. Keflvíkingurinn lék sinn fyrsta landsleik þegar Ísland tók á móti Lettlandi í september 2020. Sveindís stimplaði sig inn með krafti því hún skoraði tvö mörk í leiknum en þá hafði enginn leikmaður skorað jafn mikið í fyrsta leik sínum með landsliðinu.

Sveindís var þá nítján ára leikmaður Breiðabliks en er núna 22 ára leikmaður Wolfsburg. Hún hefur leikið 32 landsleiki og skorað átta mörk.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Hinn leikmaðurinn sem hefur skorað tvö mörk í fyrsta A-landsleik sínum er Ólöf Sigríður. Það var á Pinatar mótinu í febrúar á þessu ári. Ólöf, sem var þá nítján ára, skoraði bæði mörk Íslands í 2-0 sigri á Skotlandi. Sannarlega kraftmikil byrjun hjá Þróttaranum markheppna.

Rakel Ögmundsdóttir

Rakel, þá 22 ára leikmaður Breiðabliks, skoraði tvö mörk í fyrsta landsleik sínum, 2-2 jafntefli gegn Úkraínu í Donetsk í ágúst 1999. Rakel kom inn á sem varamaður strax á 13. mínútu og skoraði á 57. mínútu. 

Rakel Ögmundsdóttir í leik með Breiðabliki um aldamótin.blikar.is

Rakel hafði komið inn í Blikaliðið um mitt þetta sumar frá Bandaríkjunum og skorað sjö mörk í níu leikjum í deildinni. Rakel er með frábæra tölfræði með íslenska landsliðinu en í tíu leikjum fyrir það skoraði hún sjö mörk.


Tengdar fréttir

Inn­hólf Karó­línu fullt af þakk­látum Þjóð­verjum

Íslensku stelpurnar í fótboltalandsliðinu unnu ekki bara frækinn sigur gegn Dönum í gærkvöld heldur gerðu þær Þjóðverjum risastóran greiða um leið. Og Þjóðverjarnir hafa verið duglegir að þakka fyrir sig.

Fjölskyldan í skýjunum með frumraun Fanneyjar

Hin 18 ára gamla Fann­ey Inga Birkis­dóttir, stimplaði sig ræki­lega inn í ís­lenska kvenna­lands­liðið í fót­bolta er hún átti stór­leik í sínum fyrsta A-lands­leik. Leik gegn Dönum á úti­velli í Þjóða­deildinni sem endaði með eins marks sigri Ís­lands. Fjöl­skylda Fann­eyjar var á vellinum í Vi­borg og segir faðir hennar, Birkir Ingi­bjarts­son, dóttur sína al­deilis hafa sýnt hvað í sér býr.

Danir í sárum eftir „fíaskóið“ gegn Íslandi

Danir eru í öngum sínum yfir að hafa ekki nýtt tækifærið til að komast í dauðafæri á að fara á Ólympíuleikana næsta sumar. Tapið gegn Íslandi í gær, 1-0, er þeim afar dýrkeypt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×