Menning

Söng á stærsta dans­leik Þýska­lands

Íris Hauksdóttir skrifar
Helga Dýrfinna Magnúsdóttir lifir drauminn í Þýskalandi.
Helga Dýrfinna Magnúsdóttir lifir drauminn í Þýskalandi.

„Þetta gekk glimrandi vel og það er mikill heiður að fá tækifæri af þessari stærðargráðu,“ segir Helga Dýrfinna Magnúsdóttir söngkona.

Dansleikurinn sem um ræðir nefnist Deutscher sportpresse ball og er haldinn í Gömlu óperunni í Frankfurt. Þangað mæta sjónvarpsstjörnur, leikarar, íþróttahetjur og stjórnmálamenn.

Þetta er annað árið í röð sem Helga skemmtir á samkomunni og mun koma aftur fram að ári liðnu.

Helga Dýrfinna ásamt samstarfsmanni sínum, söngvaranum Reinhard Paul sem ruddi leið hennar upp á stóra sviðið.aðsend

Helga hefur undanfarna tvo áratugi búið í Þýskalandi ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanni og tveimur drengjum. Þar starfar hún sem söngkona sem hún segir algjört draumastarf.

Heimili fjölskyldunnar er staðsett rétt fyrir utan Frankfurt og segist Helga kunna afar vel við sig í þýskri sveitasælu.

„Bærinn okkar heitir Aschaffenburg og er rosalega fallegur. Hér búa um sjötíu þúsund manns og allt nærumhverfið er himneskt. Gamli bærinn er dásamlegur og falleg höll sem ég hef sungið nokkrum sinnum í.“

Stærsti viðburður ferilsins

Spurð hvernig hún hafi ratað á þetta stóra svið nefnir Helga góðan vin sem hún kynntist fyrir nokkrum árum.

„Ég kynntist Reinhard Paul í miðjum heimsfaraldri en hann er söngvari og smellpassar við mig, bæði raddlega sem og persónulega. Hann býr að fjörutíu ára reynslu í þessum bransa og syngur á öllum flottustu stöðunum, þar á meðal þessum dansleik. Hann ruddi í raun leið mína þangað inn.“

Helga ásamt Peter Fischer en hann gengdi stöðu forseta eintracht þegar þeir unnu Evrópu mótið.aðsend

Helga segir að þetta sé án nokkurs vafa stærsti viðburður síns ferils. 

Hvernig voru taugarnar?

„Ég var mjög stressuð en líka spennt. Í ár kom þetta enn betur út en í fyrra þegar ég söng í fyrsta skipti enda var ég öruggari og vissi hvað ég væri að fara út í. Maðurinn minn var sömuleiðis mjög spenntur að sjá mig syngja þarna því ég þekki ekki alltaf á hvaða stærðargráður hver viðburður er. Ég hef margoft sungið á stórum sviðum en þetta er fyrir stærstu stjörnur Þýskalands. Það er ekki oft sem maður fær að upplifa slíkt.“

Helda Dýrfinna ásamt einum af stofnenda Deutscher sportpresse ball. aðsend

Óheppilegt orðarugl í lyftuferð

Á dansleiknum sem haldinn var þann 4. nóvember síðastliðinn hitti Helga fyrir borgarstjóra Frankfurts. Þau voru stödd í lyftu og Helga hafði lent í því óláni að vökvi hafði sullast yfir kjólinn hennar.

„Kannski er þetta ekki fyndin saga nema hún sé sögð á þýsku en þýsk mörg orð eru keimlík í framburði þó merking þeirra sé gjörólík, segir Helga og heldur áfram. Dæmi um slík orð eru geschüttelt og geschüttet nánast alveg eins bara eitt L sem gerir muninn. Geschüttelt merkir að einhver hafi hellt yfir þig en geschüttet þýðir að einhver hafi sprautað einhverju á þig. 

Skemmst frá því að segja að þarna ruglaðist ég á orðunum tveimur og aumingja maðurinn hrökklaðist hálfpartinn út úr lyftunni og sagðist ómögulega vilja vita frekari smáatriði frá þessari sögu.“

Ljóst er að óheppilegt orðarugl hafi þó ekki komið í veg fyrir að Helga fengi endurráðningu því hún hefur nú skrifað undir samning og mun syngja að ári liðnu. 

Framundan tekur svo við verkefni sem er ekki af verri endanum en Helga, ásamt meðsöngvara sínum, fyrrnefndum Reinhard halda um borð í skemmtiferðaskip þar sem þau munu koma fram nokkur kvöld í desember.

„Það er auðvitað mjög spennandi gigg, en að því loknu hlakka ég mikið til að njóta aðventunnar með strákunum mínum og nánustu fjölskyldu.“

Áhugasamir geta fylgst með ævintýrum Helgu Dýrfinnu HÉR á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×