Fótbolti

Töpuðu einnig 2-0 gegn Portúgal

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Byrjunarlið Íslands gegn Spáni en þeim leik lauk með 3-3 jafntefli.
Byrjunarlið Íslands gegn Spáni en þeim leik lauk með 3-3 jafntefli. KSÍ

Landslið stúlkna 15 ára og yngri mátti þola 2-0 tap gegn Portúgal í þróunarmóti UEFA sem nú fer fram í Portúgal. 

Í gær tapaði íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu 2-0 fyrir Portúgal en nú var komið að U-15 ára landsliði stúlkna að mæta Portúgal. Líkt og í gær fór Portúgal með 2-0 sigur af hólmi en Ísland hafði byrjað mótið á 3-3 jafntefli við Spán.

Ísland gerði níu breytingar á byrjunarliði sínu en ef aðeins er rýnt er í úrslitin gætu þau komið á óvart þar sem Portúgal tapaði 11-1 gegn Þýskalandi í fyrsta leik sínum á mótinu. Ísland mætir Þýskalandi á fimmtudaginn kemur í lokaleik sínum á mótinu.

Leikinn má sjá í heild sinni hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×