Fótbolti

Leik­maður FCK kallaði Garnacho trúð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alejandro Garnacho var miður sín eftir tap Manchester United fyrir FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu.
Alejandro Garnacho var miður sín eftir tap Manchester United fyrir FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu. getty/James Gill

Leikmaður FC Kaupmannahafnar kallaði Alejandro Garnacho, leikmann Manchester United, trúð eftir leik liðanna í Meistaradeild Evrópu.

FCK vann dramatískan sigur á United, 4-3, í A-riðli Meistaradeildarinnar í fyrradag. Hinn sautján ára Roony Bardghji skoraði sigurmark danska liðsins undir lok leiksins.

United komst í 0-2 í leiknum á Parken með tveimur mörkum Rasmusar Højlund. Mohamed Elyounoussi minnkaði muninn fyrir FCK og dönsku meistararnir fengu svo vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

FCK fékk einnig víti í fyrri leiknum gegn United en André Onana varði þá frá Jordan Larsson. Áður en Svíinn tók spyrnuna átti Garnacho við vítapunktinn og traðkaði á honum. Argentínumaðurinn reyndi svo að endurtaka leikinn á Parken en það hafði ekki sömu áhrif og á Old Trafford.

Denis Vavro, varnarmaður FCK, fannst ekki mikið til uppátækis Garnachos koma og gagnrýndi hann eftir leikinn.

„Ég sá að hann reyndi að eiga eitthvað við vítapunktinn en Kevin Diks stóð fyrir framan hann og hindraði hann. Þetta er í annað sinn sem hann gerir þetta. Og á okkar heimavelli. Fyrir mér er hann trúður,“ sagði Vavro.

„Hann er með hugarfar smábarns. Það er eitt að gera þetta á 97. mínútu á heimavelli en að gera þetta í fyrri hálfleik hérna. Ég skil hann ekki.“

Vavro er ekki eini leikmaður FCK sem hefur gagnrýnt United-menn eftir leikinn á miðvikudaginn. Elyounoussi sagði meðal annars að Bruno Fernandes, fyrirliði United, væri sívælandi.

United er á botni A-riðils Meistaradeildarinnar með þrjú stig þegar tveimur leikjum er ólokið. United á eftir að mæta Bayern München á heimavelli og Galatasaray á útivelli.


Tengdar fréttir

Arnar Gunnlaugsson: Hvað ætli hafi gerst fyrir Varane?

Arnar Gunnlaugsson var sérstakur sérfræðingur Meistaradeildarmessunnar í gærkvöldi og velti fyrir sér miðvarðavandræðum Manchester United eftir 4-3 tap liðsins gegn FC Kaupmannahöfn í gærkvöldi. 

„Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir okkur“

Manchester United mátti þola svekkjandi 4-3 tap eftir hádramatískan leik gegn FCK á Parken. Manchester liðið situr í neðsta sæti A-riðils Meistaradeildarinnar eftir úrslit gærkvöldsins. 

Orri eftir sigur á Man Utd: Alveg klikkað sem maður var að upp­lifa

Orri Steinn Óskarsson og félagar í danska liðinu FC Kaupmannahöfn unnu hádramatískan 4-3 endurkomusigur á Manchester United í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Orri spilaði síðustu tuttugu mínútur leiksins eða einmitt mínúturnar þegar FCK sótti sigurinn.

Skýrsla frá Parken: Man United er brotið á líkama og sál

FC Kaupmannahöfn gerði sér lítið fyrir og lagði Manchester United í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld, lokatölur 4-3 í hreint út sagt ótrúlegum leik. Blaðamaður Vísis var á leiknum og upplifði þær ótrúlegu tilfinningasveiflur sem fylgdu leik gærkvöldsins.

Ótrúleg endurkoma í hádramatískum leik

FC Kaupmannahöfn vann 4-3 sigur á Manchester United í hádramatískum leik þar sem rautt spjald leit dagsins ljós. United komst tapaði niður tveggja marka forystu eftir að hafa lent manni undir, komst aftur yfir en heimamenn skoruðu tvívegis undir lokin og sóttu sigurinn.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×