Áfram norðaustlæg átt og hiti að sex stigum Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2023 07:17 Reikna má með að það verði léttskýjað á Suður- og Suðvesturlandi. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli illviðrinu í Evrópu í gær er nú yfir Norðursjó og þokast til norðvesturs. Áttin verður því áfram norðaustlæg í dag, víða gola, kaldi eða strekkingur og dálitlar skúrir eða él. Þó má reikna með að verði léttskýjað á Suður- og Suðvesturlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu núll til sex stig yfir daginn. Síðdegis mun svo fara að rigna austantil á landinu en á fjallvegum megi búast við slyddu eða snjókomu. „Norðaustan 8-15 m/s á morgun og skúrir eða slydduél, en áfram þurrt og nokkuð bjart á suðurhluta landsins. Annað kvöld hvessir norðvestantil á landinu og það bætir aftur í úrkomu fyrir austan. Á sunnudag er svo útlit fyrir ákveðna norðaustanátt með úrkomusömu veðri, rigningu eða slyddu á láglendi og snjókomu á heiðum, en það verður áfram þurrt að mestu um landið sunnanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Vaxandi norðaustanátt, 10-18 m/s síðdegis. Skúrir eða slydduél, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Hiti 1 til 6 stig. Rigning á Austurlandi um kvöldið. Á sunnudag: Norðaustan 13-20 m/s, hvassast norðvestanlands. Rigning eða slydda á norðaustanverðu landinu, annars dálitlar skúrir eða él, en þurrt að kalla sunnantil. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Minnkandi norðaustan- og austanátt, 5-13 síðdegis. Rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið um landið sunnanvert. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Á þriðjudag: Vaxandi austlæg átt og væta á víð og dreif. Hlýnar smám saman. Á miðvikudag: Austan og norðaustanátt og rigning, en lítilsháttar væta um landið norðanvert. Milt í veðri. Á fimmtudag: Snýst í norðlæga átt og kólnar með slyddu eða snjókomu á Norðurlandi.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira