Erlent

Vilja að Úkraínumenn einbeiti sér að suðrinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Úkraínskir hermenn á ferðinni í Dónetskhéraði.
Úkraínskir hermenn á ferðinni í Dónetskhéraði. AP/Libkos

Bandamenn Úkraínu telja forsvarsmenn úkraínska hersins hafa dreift of mikið úr hermönnum sínum. Úkraínumenn þurfi að einbeita sér frekar að því að sækja fram í suðurhluta Úkraínu heldur en í austri.

Þetta hafa blaðamenn New York Times eftir heimildarmönnum sínum í Bandaríkjunum og annars staðar á Vesturlöndum. Í frétt miðilsins segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til við Úkraínumenn að þeir safni liði í suðri og reyni að sækja fram að Ásóvhafi og skera á birgðalínur Rússa til Krímskaga.

Úkraínumenn hafa reynt það undanfarnar vikur og mánuði en það hefur reynst erfitt. Er það að miklu leyti vegna umfangsmikilla jarðsprengjusvæða Rússa sem hafa gert Úkraínumönnum erfitt að sækja fram. Það leiddi til þess að Úkraínumenn breyttu um stefnu í sumar og reyna frekar að draga hægt og rólega úr mætti Rússa, sem hafa þó töluverða yfirburði varðandi mannafla og hergögn.

Til þessa hafa Úkraínumenn notast við stórskotaliðsárásir, HIMARS- og GMLRS-eldflaugar og Storm Shadow stýriflaugar. Árásir hafa verið gerðar á birgðastöðvar Rússa, vopnageymslur og stjórnstöðvar, auk þess sem Úkraínumenn segjast hafa einbeitt sér að því að gera árásir á staði þar sem margir rússneskir hermenn hafi komið saman.

Sjá einnig: Úkraínumenn sagðir gefa í og sækja fram í Saporisjía

Samkvæmt frétt NYT hafa bandarískir herforingjar ráðlagt Úkraínumönnum að einbeita sér að sókninni að Melítópól, jafnvel þó Úkraínumenn missi fleiri hermenn og skrið- og bryndreka.

Mark A. Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, Tony Radakin, formaður herforingjaráðs Bretlands, og Christopher Cavoli, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, funduðu fyrr í mánuðinum með Varelí Salúsjní, yfirmanni úkraínska hersins, og ráðlögðu honum að einbeita sér að einni víglínu í stað nokkurra.

Samkvæmt heimildarmönnum NYT sagðist Salúsnjí vera sammála þeirri ráðleggingu. Þá eiga að hafa sést ummerki um að Úkraínumenn séu byrjaðir að flytja marga af sínum reyndustu herdeildum frá austurhluta Úkraínu til Saporisjíahéraðs.

Þessar hersveitir hafa þó orðið fyrir miklu mannfalli. Undanfarna daga hafa þó borist fregnir af góðum árangri Úkraínumanna nærri bænum Robotyne og í honum.

Washington Post hafði eftir sínum heimildarmönnum í leyniþjónustu Bandaríkjanna fyrr í mánuðinum að talið væri að Úkraínumenn myndu ekki ná til Melítópól.

Sjá einnig: Telja að Úkraínumenn nái ekki markmiði gagnsóknar sinnar

Áherslan á Bakhmut vekur furðu

Samkvæmt NYT hefur það vakið nokkra furðu vestanhafs hve miklu púðri Úkraínumenn hafa varið í að berjast um Bakmút í Dónetskhéraði. Borgin féll í hendur Rússa fyrr á árinu, eftir mikla bardaga í marga mánuði, en síðan þá hafa Úkraínumenn verið að sækja fram norður og suður af Bakmút.

Þar hafa harðir bardagar geysað en Bandaríkjamenn eru sagðir telja að Úkraínumenn þurfi eingöngu að hafa nægilega marga hermenn þar til að tryggja að Rússar geti ekki sótt lengra fram. Aðra hermenn sé hægt að senda til suðurs.

Rússar hafa sömuleiðis lagt mikla áherslu á Bakhmut og hafa meðal annars sent fallhlífarhermenn til að verja svæðið en þær herdeildir eru taldar með þeim best búnu og þjálfuðu í rússneska hernum.

Blaðamenn NYT taka þó fram að núverandi kynslóð bandarískra herforingja hafi aldrei upplifað stríð af þessari stærðargráðu og að aldrei hafi reynt á bandarískar stríðskenningar við aðstæður eins og þessar. Aðstæður þar sem mikið sé um truflanir á samskiptum og staðsetningarbúnaði og þar sem hvorug fylking hafi getað tryggt sér yfirráð í lofti.

Rússar eru einnig sagðir eiga í miklum vandræðum. Þeir eiga í vandræðum með birgðaflutninga og aga, svo eitthvað sé nefnt. Í síðasta mánuði var rússneskur herforingi sem leiddi varnir Rússa á stórum hluta víglínunnar í suðri rekinn, eftir að hann kvartaði yfir slæmum aðstæðum hermanna. Í kjölfarið sendi hann frá sér skilaboð þar sem hann sagði forsvarsmenn hersins hafa stungið hermenn í bakið.


Tengdar fréttir

Skrúfa fyrir flug­um­ferð eftir dróna­á­rásir

Minnst tveir særðust þegar flak úkraínsks dróna, sem Rússar grönduðu, hrapaði á hús í úthverfi Moskvu í nótt. Þá segja Rússar minnst sjö hafa særst í drónaárás á lestarstöð í Kúrsk í gær.

Tugir slasaðir í sprengingu í rúss­neskri verk­smiðju

Mikil sprenging varð á athafnasvæði verksmiðju sem framleiðir sjóntæki fyrir rússneska herinn nærri Moskvu í dag. Á fimmta tug manna eru slasaðir, þar af sex alvarlega. Orsakir sprengingarinnar liggja ekki fyrir að svo stöddu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×