Erlent

„Okkar æðstu yfirmenn stungu okkur í bakið“

Samúel Karl Ólason skrifar
Valery Gerasimov (til vinstri), formaður herforingjaráðs Rússlands sem leiðir innrás Rússa í Úkraínu, rak herforingjann Ivan Popov eftir að hann kvartaði yfir vandamálum sem rússneskir hermenn standa frammi fyrir.
Valery Gerasimov (til vinstri), formaður herforingjaráðs Rússlands sem leiðir innrás Rússa í Úkraínu, rak herforingjann Ivan Popov eftir að hann kvartaði yfir vandamálum sem rússneskir hermenn standa frammi fyrir. EPA

Rússneskur herforingi sem leiddi hermenn í suðurhluta Úkraínu segist hafa verið rekinn fyrir að vekja athygli yfirmanna sinna á slæmu ástandi á víglínunum. Ivan Popov, yfirmaður 58. hers Rússlands, sendi frá sér skilaboð í gær þar sem hann sagði forsvarsmenn hersins hafa stungið hermenn í bakið.

Popov sagðist hafa tilkynnt forsvarsmönnum hersins að hermenn hans í Saporisíjahéraði hefðu orðið fyrir miklu mannfalli vegna eldflauga- og stórskotaliðsárása Úkraínumanna, sem reyna að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa í suðurhluta Úkraínu.

Herforinginn mun hafa sagt að hermenn sínir hafi verið lengi á víglínunni og hafi þurft hvíld og liðsauka.

Í skilaboðunum sem rússneskur þingmaður birti á samfélagsmiðlum í gærkvöldi segist Popov hafa staðið frammi fyrir tveimur kostum. Annar hafi verið að þegja eða segja það sem yfirmenn hans vildu segja og hinn hafi verið að lýsa hlutunum eins og þær væru raunverulega.

„Í ykkar nafni, í nafni allra félaganna sem hafa fallið, hafði ég ekki rétt til að ljúga,“ sagði Popov. Hann sagðist hafa nefnt vandræði með gagn-stórskotaliðsárásir, skort á eftirlitsstöðvum fyrir stórskotalið og það mikla mannfall sem menn hans hefðu orðið fyrir. Hann sagðist einni hafa nefnt nokkur önnur mál til sinna æðstu yfirmanna og að hann hefði gert það á opinskáan hátt.

„Vegna þessa, fannst yfirmönnum líklega að þeim stafaði ógn af mér og á einum degi lögðu þeir fram beiðni til Varnarmálaráðuneytisins og losuðu sig við mig,“ sagði Popov.

Herforinginn sagði einnig að Úkraínumönnum hefði ekki tekist að brjóta sér leið í gegnum rússneska hermenn en forsvarsmenn hersins hefðu stungið þá í bakið og afhöfðað herinn á mjög erfiðum tíma.

Varnir Rússa sagðar brothættar

Gagnsókn Úkraínumanna hefur nú staðið yfir um nokkuð skeið og hefur hún borið hægan og líklega kostnaðarsaman árangur. Í grófum dráttum hafa Úkraínumenn sótt fram á þremur víglínum. Ein er við Bakhmut í Dónetskhéraði. Önnur er í vesturhluta Saporisíja og virðist beinast að Melitópól. Sú síðasta er á landamærum Dónetsk og Saporisíja og virðist beinast að Berydansk, samkvæmt hugveitunni Institute for the study of war.

Popov hefur leitt varnir Rússa í vesturhluta Saporisíja. Hann hefur verið rekinn af Valery Gerasimov, formanni herforingjaráðs Rússlands. ISW segir mögulegt að brottrekstur Popov bendi til þess að Rússa skorti nægjanlegt varalið til að fylla upp í raðir sínar í suðri. Það gæti þýtt að varnarlínur Rússa séu brothættar, ef svo má að orði komast.

Sagt var frá því í síðasta mánuði að Úkraínumenn væru að reyna að þvinga Rússa til að senda varalið á víglínurnar, því þá hefðu Rússar minni tök á því að bregðast við árásum annars staðar og auðveldara yrði fyrir Úkraínumenn að finna veikleika á vörnum Rússa.

Umfangsmikil og ómerkt jarðsprengjusvæði hafa reynst Úkraínumönnum erfið en úkraínskir hermenn hafa reynt að nota stórskotalið og eldflaugum til að brjóta varnir Rússa á bak aftur og grafa undan birgðaneti þeirra. Sömu leiðum hefur einnig verið beitt til að reyna að granda stórskotaliðsvopnum Rússa.

Ummæli Popov benda til þess að stórskotaliðsárásir Úkraínumanna hafi borið árangur. Litlar upplýsingar um mögulegt mannfall meðal Úkraínumanna hafa þó litið dagsins ljós á undanförnum vikum.

Vinsæll meðal hermanna

Talsmenn Varnarmálaráðuneytisins hafa ekki tjáð sig um skilaboðin en samkvæmt frétt Reuters liggur ekki fyrir hvenær þau voru tekin upp. Rússneskir herbloggarar hafa einnig fjallað um skilaboðin og segja þau raunveruleg. Samkvæmt þeim voru skilaboðin upprunalega birt í lokuðum hóp 58. hers.

Herbloggarar segja Popov hafa tilkynnt Gerasimov að hann myndi fara með kvartanir sínar beint til Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og því hafi hann verið rekinn. Popov hafi verið sakaður um að reyna að kúga leiðtoga hersins. Þá segja bloggarar að brottrekstur herforingjans hafi valdið skaða á baráttuanda rússneskra hermanna, því Popov hafi verið mjög vinsæll.

Valery Gerasimov er, eins og áður segir, formaður herforingjaráðs Rússlands, og einnig náinn bandamaður Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, auk þess sem hann leiðir innrás Rússa í Úkraínu. Þegar rússneski auðjöfurinn og eigandi Wagner málaliðahópsins, gerði uppreisn í síðasta mánuði, var það með því markmiði að handsama Shoigu og Gerasimov.

Uppreisnin hófst út frá óánægju með Gerasimov og Shoigu en rússneskir hermenn lögðu niður vopn í stað þess að reyna að stöðva málaliða Wagner, sem tóku yfir borgina Rostov og stefndu í átt að Moskvu. Hermenn tveggja herdeilda eru sagðir hafa neitað skipunum um að stöðva málaliðana.

Sjá einnig: Wagn­er-lið­ar tóku stefn­un­a á kjarn­ork­u­vopn­a­geymslur

Prigozhin hefur lengi varið mjög gagnrýninn á það hvernig Shoigu og Gerasimov hafa haldið á spöðunum varðandi innrás Rússa í Úkraínu og setti sér það markmið að fella þá úr sessi. 

Hvorki Prigozhin né herforinginn Sergei Surovikin, sem leiddi um tíma innrás Rússa í Úkraínu og er talinn bandamaður Prigozhin, hafa ekki sést opinberlega um nokkuð skeið.

Þegar uppreisn Prigozhin hófst birti Varnarmálaráðuneyti Rússlands myndband af Surovikin sitja fyrir framan hvítan vegg þar sem hann fordæmdi uppreisnina.

Sjá einnig: Svara ekki spurningum um örlög hátt setts hershöfðingja

Andrei Kartapolov, þingmaður og formaður varnarmálanefndar Dúmunnar, var spurður í gær hvar Surovikin væri. Hann svaraði á þá leið að herforinginn væri að hvíla sig og ekki væri hægt að ná í hann að svo stöddu.


Tengdar fréttir

Einn lést í drónaárás á Kænugarð

Rússar gerðu árásir með drónum á höfuðborg Úkraínu Kænugarð í nótt og lét einn lífið hið minnsta og fjórir aðrir eru særðir.

Wagner hafi afhent Rússum þúsundir tonna af vopnum

Varnamálaráðuneyti Rússa greinir frá því að Wagner málaliðahópurinn hafi afhent rússneska hernum mörg þúsund tonn af vopnum. Rússar vinna nú að því að ná Wagner hópnum endanlega á sitt vald.

Úkraína með annan fótinn í dyragætt NATO

Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins og G7 ríkjanna hétu því í dag að tryggja að Úkraína fái allt það sem landið þurfi á að halda til að mæta öllu ógnum sem kunna að steðja að landinu. Þá verður aðildarferli landsins að fullri aðild að NATO einfaldað til muna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×