Víðáttumikil lægð veldur allhvössum vindi syðst á landinu Atli Ísleifsson skrifar 18. ágúst 2023 07:17 Hiti á landinu verður á bilinu tólf til 21 stig. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil lægð langt suður í hafi veldur austlægum vindi á landinu, sums staðar allhvössum og hviðóttum syðst fram á morgundag.
Annars má reikna með dátítilli rigningu eða súld í dag, hvassast syðst, en yfirleitt bjartara og þurrt norðan heiða. Það mun svo rofa til víða í nótt. Hiti verður yfirleitt á bilinu tólf til 21 stig í dag, hlýjast norðaustanlands. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að vegna hvassviðrisins syðst á landinu sé í gildi athugasemd veðurfræðings um líkur á snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum, sem gætu verið varasamar ökutækjum, sem taka á sig mikinn vind. „Lægðin ber til okkar hlýtt og rakt loft, sem gefur lítilsháttar rigningu öðru hvoru sunnan- og vestantil og hitatölur kringum 20 stig við bestu aðstæður. Regnsvæðin fjarlægast í nótt og þá rofar til víða um land, nema helst austanlands og við suðurströndina, þar sem áfram má búast við smávætu. Veðrið ætti því að leika við gesti og hlaupara Menningarnætur borgarinnar á morgun. Hvessir síðan af norðausturi á sunnudag og fer að rigna á austurhelmingi landsins,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austlæg átt, 3-10 m/s, en 10-15 við suðausturströndina. Skýjað og smásúld austast, en annars bjart með köflum. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast inn til landsins, en mun svalara við austurströndina. Á sunnudag: Norðaustlæg átt, 5-13 m/s, skýjað norðantil og rigning eða súld austantil, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast sunnan heiða. Á mánudag og þriðjudag: Norðlæg átt og dálítil rigning með köflum á austanverðu landinu, en annars úrkomulítið. Kólnar heldur fyrir norðan, en áfram hlýtt syðra. Á miðvikudag: Norðaustlæg átt og dálítil rigning með köflum, en úrkomulítið norðvestantil og milt veður. Á fimmtudag: Útlit fyrir hæga vinda, bjart með köflum og hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira