Fótbolti

BBC biðst afsökunar á óviðeigandi spurningu blaðamanns

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ghizlane Chebbak er fyrirliði Marokkó sem er á sínu fyrsta heimsmeistaramóti.
Ghizlane Chebbak er fyrirliði Marokkó sem er á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. getty/Joe Prior

Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur beðist afsökunar á óviðeigandi spurningu blaðamanns eftir leik Marokkós og Þýskalands á HM í fótbolta kvenna.

Þýskaland vann leikinn með sex mörkum gegn engu. Þegar Ghizlane Chebbak, fyrirliði marokkóska liðsins, mætti á blaðamannafund eftir leik beið hennar nokkuð óvenjuleg spurning frá blaðamanni BBC.

„Það er ólög­legt að vera í sam­kyn­hneigðu sam­bandi í Mar­okkó. Eru ein­hverj­ir sam­kyn­hneigðir leik­menn í ykk­ar liði og hvernig er lífi þeirra í Mar­okkó háttað?“ spurði blaðamaðurinn.

Chebbak var mjög undrandi á spurningunni, horfði á þjálfara sinn og hló svo. Aðrir blaðamenn voru ósáttir við spurninguna og fundarstjóri bað blaðamenn vinsamlegast að halda sig við spurningar sem tengdust fótbolta.

Fjölmargir gagnrýndu blaðamanninn líka á samfélagsmiðlum. BBC hefur nú beðist afsökunar á spurningunni.

„Við áttum okkur á að spurningin var óviðeigandi. Við ætluðum ekki að meiða eða særa neinn,“ sagði í yfirlýsingu BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×