Fótbolti

Þakkar stuðninginn: „Hef verið að reyna halda fókus en verið mjög sveiflu­­kenndur“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson að leik loknum.
Guðlaugur Victor Pálsson að leik loknum. Vísir/Hulda Margrét

„Rosalega mikið svekkelsi. Svekktur að hafa ekki náð að halda út. Áttum það skilið,“ sagði Guðlaugur Victor Pálsson, miðvörður Íslands, eftir 0-1 tapið gegn Portúgal í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu á Laugardalsvelli í kvöld.

„Því miður fóru nokkur smáatriði úrskeiðis og þar af leiðandi töpuðum við leiknum,“ bætti Guðlaugur Victor við og hélt svo áfram.

„Ég er rosalega stoltur af liðinu. Vörðumst fráærlega sem lið, gerðum þeim erfitt fyrir. Mjög svekkjandi að ná ekki að klára þetta. Snýst um smáatriði, sérstaklega í landsliðsfótbolta gegn góðum liðum. Þau refsa ef þú heldur ekki einbeitingu í 96 mínútur.“

Taka helling jákvætt út úr leikjunum tveimur

„Samt hlutir sem við getum byggt ofan á. Ef við spilum svona í næsta glugga, lögum smáatriðin þá erum við að fara vinna fótboltaleiki. Tökum helling jákvætt úr þessu. Nú er það bara september [næsta verkefni landsliðsins], taka það jákvæða og byggja áfram.“

Guðlaugur Victor spilaði í miðverði í dag eftir að hafa spilað á miðjunni gegn Slóvakíu. Í báðum leikjum var hann besti maður vallarins að mati Íþróttadeildar Vísis.

„Er vanari að spila á miðjunni en ég er rosalega ánægður að spila. Ánægður þegar ég fæ að spila, sama hvort það sé í hægri bakverði, á miðjunni eða miðverði. Þegar ég spila þá geri ég alltaf mitt besta.“

Eftir leikinn gegn Slóvakíu bárust þau tíðindi að fráfall hefði orðið í fjölskyldu Guðlaugs Victors. Hann ákvað samt sem áður að spila leikina.

„Hef verið mjög sveiflukenndur, viðurkenni það alveg. Búinn að fá frábæran stuðning frá þjálfurum, liðinu, fjölskyldu, vinum og bara öllum. Hafa hjálpað mér í gegnum þetta. Ef ég er alveg hreinskilinn þá er er ég feginn að þetta sé búið og get farið að einbeita mér með að því sem er framundan.“

Åge Hareide, landsliðsþjálfari, og Guðlaugur Victor.Vísir/Hulda Margrét

„Hef verið að reyna halda fókus en verið mjög sveiflukenndur, þetta er mikið að díla við. Ánægður að hafa komist ágætlega frá þessu, og bara við, þrátt fyrir núll stig. Verð nú á Íslandi í smá tíma með fjölskyldu og vinum,“ sagði Guðlaugur Victor að endingu.

Klippa: Guðlaugur Victor - Viðtal

Tengdar fréttir

Valgeir: Gæti hafa verið rangstaða

„Ég held að svekkelsið gæti ekki verið meira, að fá þetta svona í andlitið á 90. mínútu eftir alla þessa vinnu á móti þessu liði. Þetta er gríðarlega svekkjandi,“ sagði Valgeir Lunddal Friðriksson eftir tapið gegn Portúgal í kvöld.

Albert: Finnst við vera að byggja eitthvað

Albert Guðmundsson var svekktur en samt nokkuð ánægður með frammistöðu íslenska liðsins gegn Portúgal í kvöld. Hann segir hægt að byggja á frammistöðu liðsins í þessum landsliðsglugga.

„Mjög svekkjandi að fá þetta leiðinda­mark á sig“

„Mjög svekkjandi, fannst við eiga gífurlega flottan leik. Fylgdum leikplaninu alveg í gegn. Mjög svekkjandi að fá þetta leiðindamark á sig,“ sagði miðjumaðurinn Arnór Ingvi Traustason eftir súrt 0-1 tap Íslands gegn Portúgal í undankeppni EM 2024 í kvöld.

Kennir Willum og Herði ekki um: „Portúgalinn oflék þetta“

Åge Hareide segir það ekki hafa verið Herði Björgvini Magnússyni að kenna að Portúgalar skyldu sleppa við rangstöðu í markinu gegn Íslandi í kvöld, og að Willum Þór Willumsson hafi ekki verðskuldað rauða spjaldið sem hann fékk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×