Fótbolti

Kennir Willum og Herði ekki um: „Portúgalinn oflék þetta“

Sindri Sverrisson skrifar
Åge Hareide í leik kvöldsins.
Åge Hareide í leik kvöldsins. Vísir/Hulda Margrét

Åge Hareide segir það ekki hafa verið Herði Björgvini Magnússyni að kenna að Portúgalar skyldu sleppa við rangstöðu í markinu gegn Íslandi í kvöld, og að Willum Þór Willumsson hafi ekki verðskuldað rauða spjaldið sem hann fékk.

„Ég er mjög vonsvikinn því ég taldi leikmennina gera mjög vel varnarlega og leggja hart að sér. Þetta var erfitt í lokin, með 10 menn inn á, og við þurftum að gera skiptingar. Við þurftum að verja meira svæði, sérstaklega á miðjunni, og við féllum á því,“ sagði landsliðsþjálfarinn á blaðamannafundi eftir 1-0 tapið gegn Portúgal í kvöld.

„Við vorum svolítið óheppnir með þessa stöðu. Það var harkalegt gagnvart Willum að hann fengi tvö gul spjöld þarna, og þar með var þetta mjög erfitt fyrir strákana. Þeir börðust samt allan tímann og stóðu sig frábærlega.

Við unnum með þeim í þessu verkefni og þeir hafa aðlagast vel, voru vel skipulagðir og unnu mikið hver fyrir annan. Það skipti auðvitað máli að Aron Einar Gunnarsson, Arnór Sigurðsson og Birkir Bjarnason gætu ekki spilað vegna meiðsla. Þetta voru slæm úrslit en góðar frammistöður. Við áttum að vinna Slóvakíu og í staðinn fyrir 4 stig fengum við 0, en nú eru strákarnir tilbúnir og við hlökkum til. Við ætlum að losna við óheppnina og fá heppni,“ sagði Hareide.

Aðspurður um sigurmark Portúgals, þar sem Portúgalar rétt sluppu við rangstöðu vegna staðsetningar Harðar Björgvins, sagði Hareide:

„Þegar maður sér myndir af þessu þá ýtti [Diogo] Dalot honum í þessa stöðu. Við þurfum að vera tilbúnir í það. Það þarf að spyrja Hörð hvort hann hafi getað gert eitthvað í þessu en ég held að honum hafi verið ýtt úr jafnvægi. Það sýna myndirnar. Ég held að Hörður hafi ekkert sofnað

Það er auðveldlega hægt að segja að þetta hafi verið brot en dómarinn gaf okkur ekkert í þessum leik. Maður þarf að vara sig í svona stöðu.“

Willum Þór Willumsson fékk sitt seinna gula spjald og þar með rautt fyrir þessa tæklingu.VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Auðvelt að gefa spjald út af öskrum frá Portúgölum

Hareide hrósaði íslenska liðinu í hástert eftir leikinn og hafði ekkert út á leik þess að setja í kvöld. Hann var spurður sérstaklega út í leik miðvarða Íslands og Arnór Ingva Traustason, hrósaði þeim mjög og bætti Rúnari Alex Rúnarssyni við.

Aðspurður frekar út í rauða spjaldið á Willum sagðist Hareide ekki telja að Willum verðskuldaði seinna gula spjaldið sem hann fékk, fyrir brot á Goncalo Inácio úti við hliðarlínu:

„Hann reyndi við boltann, fór í boltann og Portúgalinn oflék þetta. Hann var ekki svona meiddur. Boltinn var á milli og þegar svo er… þetta leit hættulegar út en þetta var. En dómarinn átti auðvelt með að gefa gult spjald því Portúgalarnir öskruðu á það af bekknum. Þeir setja alltaf pressu á dómarana. Hann [Willum] hefði getað haldið ró sinni betur en ég kenni honum engan veginn um. Hann var að reyna að vinna boltann.“


Tengdar fréttir

Valgeir: Gæti hafa verið rangstaða

„Ég held að svekkelsið gæti ekki verið meira, að fá þetta svona í andlitið á 90. mínútu eftir alla þessa vinnu á móti þessu liði. Þetta er gríðarlega svekkjandi,“ sagði Valgeir Lunddal Friðriksson eftir tapið gegn Portúgal í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×