Enski boltinn

Myndband: Bikarinn fór á loft í Manchester

Aron Guðmundsson skrifar
Ilkay Gundogan og Englandsmeistarar Manchester City
Ilkay Gundogan og Englandsmeistarar Manchester City Vísir/Getty

Englandsmeistararatitillinn fór á loft í Manchesterborg í dag eftir sigur Englandsmeistara Manchester City á Chelsea. 

Ljóst var í gær, eftir tap Arsenal gegn Nottingham Forest, að Manchester City væri orðið Englandsmeistari þriðja tímabilið í röð og í níunda skiptið í sögunni.

Það var því blásið til sigurhátíðar á heimavelli félagsins, Etihad leikvanginum, er meistararnir mættu til leiks og báru sigur úr býtum gegn Chelsea. 

Eftir leik héldu fagnaðarlætin áfram og Englandsmeistaratitillinn fór á loft við hátíðlega athöfn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×