Bjartviðri og næturfrost Bjarki Sigurðsson skrifar 29. apríl 2023 07:48 Hiti verður á bilinu núll til átta stig, en víða næturfrost. Vísir/Vilhelm Búist er við norðlægri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu. Bjart verður víða um land en þykknar upp sunnanlands seinni partinn með stöku skúrum eða éli suðaustanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofunni segir að hvassast verði á Austfjörðum, allt að fimmtán metrar á sekúndu. „Núna í morgunsárið er létt- eða hálfskýjað í öllum landshlutum en er líður á daginn þykknar upp sunnantil og líkur á stöku skúr eða slydduél á Suðausturlandi. Hiti 0 til 8 stig, svalast norðaustanlands, en hlýjast með suðurströndinni. Líkt og gjarnan fylgir bjartviðri á þessum tíma árs er þó víða von á næturfrosti,“ segir á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Norðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast með norður- og norðausturströndinni. Bjartviðri framan af degi, en þykknar upp með stöku él á norðanverðu landinu seinni partinn. Vægt frost norðantil, en hiti annars 1 til 7 stig. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Lítilsháttar él og vægt frost á Norður- og Austurlandi, en annars bjart með köflum og hiti að 5 stigum. Á þriðjudag og miðvikudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en austanstrekkingur og stöku skúr við suðurströndina. Hiti 0 til 7 stig, svalast norðaustanlands. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu og hlýnandi veðri, en þurrt að kalla norðaustanlands. Á föstudag: Líklega suðlæg átt og skúrir á víð og dreif. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira