Tónlist

Högni, Daníel Ágúst, DJ Sól­ey og Ingvar E. fögnuðu með Snæ­fríði Ingvars

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Snæfríður Ingvarsdóttir bauð í partý á Hótel Holti. Tilefnið var frumsýning á tónlistarmyndbandi hennar við lagið Lilies.
Snæfríður Ingvarsdóttir bauð í partý á Hótel Holti. Tilefnið var frumsýning á tónlistarmyndbandi hennar við lagið Lilies. Samsett/Elísabet Blöndal

Snæfríður Ingvarsdóttir hélt útgáfupartý á Hótel Holti í síðustu viku, í tilefni af því að hún var að senda frá sér sitt fyrsta tónlistarmyndband. Margt var um manninn og sameinuðust hinar ýmsu listaspírur landsins á þessum glæsilega viðburði. 

Tónlistarmyndbandið er við lagið Lilies og var frumsýnt á Vísi í síðustu viku. Í samtali við blaðamann segir Snæfríður að útgáfupartýið hafi gengið vonum framar. 

„Það heppnaðist ótrúlega vel. Það var dásamlegt að sjá hversu margir mættu. Ég var mjög glöð með kvöldið og þakklát fyrir hvað fólk heillaðist af laginu og myndbandinu. Það hvetur mig áfram til að gefa út meira efni í framtíðinni.“

Hér má hlusta á lagið á Spotify.

Leikstjórar myndbandsins eru Arni & Kinski og Jónatan Grétarsson. Klipping og eftirvinnsla var í einnig í höndum Arna & Kinski en Sunna Björk sá um förðun og Birna Magnea um hár. 

Hér má sjá vel valdar myndir úr partýinu:

Daníel Ágúst faðmar Snæfríði eftir að tónlistarmyndbandið var sýnt.Elísabet Blöndal

DJ Margeir, Kurt Uenala, Inga Harðardóttir og Sveinn Guðjónsson skemmtu sér vel. Elísabet Blöndal

Högni Egilsson og Snæfríður Ingvars eru glæsilegt par. Elísabet Blöndal

Dögg Patricia Gunnarsdóttir, Lovísa Sigurðardóttir og Alma Finnbogadóttir voru litríkar og flottar í partíinu. Elísabet Blöndal

Gleðin var við völd í partíinu.Elísabet Blöndal

Snæfríður var í skýjunum með gott útgáfupartí. Elísabet Blöndal

Margt var um manninn og stemningin góð.Elísabet Blöndal

Ingvar E. Sigurðsson, faðir Snæfríðar, var að sjálfsögðu á staðnum.Elísabet Blöndal

Snæfríður var að frumsýna sitt fyrsta tónlistarmyndband.Elísabet Blöndal

Æskuvinkonurnar Stella Bietvedt og Snæfríður Ingvarsdóttir.Elísabet Blöndal

Líf og fjör.Elísabet Blöndal

Stella Bietvedt til vinstri og Snæfríður Ingvars, Inga Harðar og DJ Sóley brosa fyrir aðra myndavél.Elísabet Blöndal

Snæfríður með leikstjórum tónlistarmyndbandsins, Jónatan Grétarssyni, Sigga Kinski og Stefáni Árna.Elísabet Blöndal

Snæfríður og leikstjórinn Kristín Jóhannesdóttir. Kristín leikstýrði sem dæmi kvikmyndinni Ölmu, sem Snæfríður leikur í. Elísabet Blöndal

Brynja Anderiman var meðal gesta.Elísabet Blöndal

Það var vel mætt í útgáfupartíið og sátu sumir á gólfinu við áhorf. Elísabet Blöndal

Bix Sigurðsson og Arna Gerður Bang voru glæsileg á Hótel Holti.Elísabet Blöndal

Inga Harðardóttir og Sóley Kristjánsdóttir, DJ Sóley, mættu í partíið. Elísabet Blöndal

Hlutföll formatsins á tónlistarmyndbandinu voru hugsuð fyrir síma.Elísabet Blöndal

Snæfríður var í mjög smart skóm.Elísabet Blöndal

Inga Harðardóttir og Sóley Kristjánsdóttir, DJ Sóley, mættu í partíið. Elísabet Blöndal

Stuð og stemning.Elísabet Blöndal

Daníel Ágúst, Baldur Stefánsson og Biggi Veira voru ótrúlega smart.Elísabet Blöndal

Tengdar fréttir

Fékk tíma til að stoppa og hafði þá þörf fyrir að tjá sig frá sínu eigin hjarta

„Mér finnst ótrúlega gaman að vera búin að koma þessu út. Listin verður aldrei raunveruleg fyrr en hún fær að spegla sig á samfélagið einhvern veginn. Annars er þetta bara inni í hausnum á mér“, segir leikkonan Snæfríður Ingvarsdóttir, sem var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Lilies. Blaðamaður tók púlsinn á henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×