Tónlist

„Algjör draumur að geta unnið við það sem ég elska“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Una Torfa er viðmælandi í Nýliðanum, en hún er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár.
Una Torfa er viðmælandi í Nýliðanum, en hún er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár. Skjáskot/Vísir

Tónlistarkonan Una Torfadóttir ber marga hatta og segist fyrst og fremst vera stemningskona. Hún hefur verið í kringum tónlist allt sitt líf og segir algjöran draum að geta nú unnið við það sem hún elskar. Una Torfa er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

Nú styttist óðum í Hlustendaverðlaunin 2023 sem fara fram 17. mars næstkomandi í Háskólabíói. Nýliði ársins er meðal verðlaunaflokka og eru átta hljómsveitir og tónlistarmenn sem keppast um titilinn. Lífið á Vísi ræddi við allt tónlistarfólkið sem var tilnefnt í þessum flokki og fékk smá innsýn inn í sköpunargleði þeirra og tónlist.

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan:

Klippa: Una Torfa þáttur tvö

Hver ert þú með eigin orðum?

Ég er söngvaskáld og nemi í klæðskurði, samt stemningskona fyrst og fremst.

Hvernig myndir þú lýsa þínum tónlistarstíl?

Ég sem texta á íslensku og lög við sem vinna vel með textanum. Ég lýsi tónlistinni minni oftast sem svona poppaðri folk/indie sönglagatónlist eða eitthvað svoleiðis. Ég er ekkert að finna upp hjólið, bara að syngja frá hjartanu.

Hver var kveikjan að því að þú byrjaðir í tónlist?

Það er svolítið erfitt að setja fingurinn á hvar snjóboltinn byrjaði að rúlla. 

Ég fæddist inn í fjölskyldu þar sem allir syngja og flestir spila á hljóðfæri, það var bara tímaspursmál hvenær ég færi að spreyta mig. 

En það var smá örlagastund þegar Júlía Margrét, vinkona mín, kom mér í samband við Hildi Kristínu sem vann fyrstu plötuna mína með mér, þá var ekki aftur snúið.

Hvað er það skemmtilegasta við að vinna í tónlist?

Mér finnst lang skemmtilegast að spila fyrir fólk. Að opna mig og vona að mér takist að mynda tengsl við þau sem hlusta. 

Það er líka geggjuð tilfinning að klára að semja nýtt lag og svo er svo gaman að spila með hljómsveit.

En erfiðasta?

Það getur orðið ansi snúið að halda utan um allt sem er í gangi, að finna tíma fyrir æfingar og gigg og fundi. En vinnan er öll þess virði, það er algjör draumur að geta unnið við það sem ég elska.

Er eitthvað við tónlistarbransann sem hefur komið þér á óvart?

Ég er búin að læra svo margt á þessu eina ári sem ég hef verið í bransanum. 

Það eru enn þá alls konar hlutir sem ég skil ekki og kann ekki en þá skiptir mig mestu máli að hafa gott fólk í kringum mig sem ég get leitað til og unnið með. Það er enginn góður í þessu öllu.

Drauma samstarfs aðili?

Ég veit það er smá væmið en ég er búin að vera að vinna með Hafsteini Þráinssyni, kærastanum mínum, og ég var löngu búin að tilkynna honum að ég hefði áhuga á samstarfi áður en við byrjuðum saman.

Það er ómetanlegt að geta unnið með honum, hann er svo flinkur og þekkir mig svo vel. Auðvitað dreymir mig líka um að gera lög með öðrum artistum og prófa að vinna með öðrum pródúserum, það er svo margt spennandi sem væri hægt að gera.

Áttu þér einhverja íslenska fyrirmynd í tónlistarheiminum?

Platan hans Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, var mjög mikið spiluð heima þegar hún kom út. Hann er magnaður lagasmiður og söngvari. Við hlustuðum líka á Emiliönu Torrini, Pál Óskar, Stuðmenn og Þursaflokkinn og margt fleira sniðugt. 

Svo elska ég textana og laglínurnar hjá Sprengjuhöllinni og Hjálmum. Undanfarin ár hef ég hlustað mikið á Bríeti, Jóa Pé og Króla, FLOTT og svo var að koma út svo falleg plata með Uppáhellingunum þar sem mágkona mín Salóme Katrín syngur eitt lag, mæli með.

Hvernig var tilfinningin að fá tilnefningu sem Nýliði ársins?

Bara frábær! Það er ótrúlega skemmtilegt að fá svona góðar viðtökur og ekki annað hægt en að fyllast þakklæti. Ég hlakka bara til að halda áfram.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×